Páll sýknaður Árni Sæberg skrifar 31. maí 2024 14:07 Páll Vilhjálmsson bloggari er sýkn af kröfum Heimildarmanna. Vísir/Vilhelm Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari og bloggari hefur verið sýknaður af öllum kröfum tveggja blaðamanna á Heimildinni í Landsrétti. Þeir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður sama miðils, stefndu Páli fyrir meiðyrði og kröfðust ómerkingar á tvennum ummælum á bloggsíðu hans á vefsvæði Mbl.is. Annars vegar voru það ummæli um að tvímenningarnir hefðu átt „aðild, beina eða óbeina“ að því að Páli Steingrímssyni, skipstjóra hjá Samherja, hefði verið byrlað og síma hans stolið. Hins vegar voru það ummæli Páls um að saksóknari gæfi út ákæru á hendur blaðamönnunum. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var Páll dæmdur til að greiða blaðamönnunum 300 þúsund krónur, hvorum fyrir sig, auk málskostnaðar upp á 700 þúsund krónur. Landsréttur sýknaði Pál af öllum kröfum blaðamannanna, þegar dómur var kveðinn upp klukkan 14. Málskostnaður fellur niður á báðum dómstigum. Þá voru ummæli hans dæmd dauð og ómerk í héraði en ekki Landsrétti. Beinskeytt og óvægin ummæli sett fram í góðri trú Í dómi Landsréttar segir að þótt ummæli Páls væru sannarlega beinskeytt og óvægin, yrði að líta til þeirrar staðreyndar að Arnar Þór og Þórður Snær hefðu haft stöðu sakborninga og sætt, þegar ummælin féllu, rannsókn lögreglu vegna mögulegrar aðildar, beinnar eða óbeinnar, að brotum á ákvæðum hegningarlaga. Þá lægi fyrir að þeirri sakamálarannsókn væri ekki lokið. Líta yrði svo á að ummæli Páls hefðu falið í sér staðhæfingu um staðreynd og Páll hefði verið í góðri trú um að nægileg stoð væri fyrir þeim staðhæfingum þegar þau voru látin falla. Blaðamenn megi þola gagnrýni Páll hefði verið þátttakandi í almennri umræðu um mikilvægt samfélagslegt málefni sem erindi ætti við almenning og hefði af þeim sökum notið rúms tjáningarfrelsis á meðan Arnar Þór og Þórður Snær mættu sem blaðamenn og opinberar persónur gera ráð fyrir að þurfa að þola hvassa og óvægna gagnrýni í kjölfar eigin skrifa. Þegar til alls þessa væri litið yrði lagt til grundvallar að Páll hefði mátt vera í góðri trú um að nægjanlegt tilefni væri til ummælanna og að þau hefðu, þegar litið væri til hinnar hvössu umræðu sem málið hefði vakið, ekki gengið svo langt að nauðsyn bæri til þess í lýðræðislegu samfélagi, þar sem tjáningarfrelsi er í hávegum haft, að ómerkja þau. Annað mál á leið fyrir Landsrétt Páll var dæmdur til að greiða þriðja Heimildarmanninum, Aðalsteini Kjartanssyni, 450.000 krónur í miskabætur og 1,4 milljón króna í málskostnað vegna átta ummæla, sem voru dæmd dauð og ómerk þann 14. apríl síðastliðinn. Ummælin voru eftirfarandi. 1. 2. apríl 2022:: „Verðlaunin fengu þeir fyrir fréttir sem aflað var með glæpum, byrlun og gagnastuldi“. „…og Aðalsteinn Kjartansson á stundinni eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skiptstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans“. 2. 25. ágúst 2022: „Leikritið um að Aðalsteinn ynni á Stundinni, en ekki RÚV, var hluti af samráði um að byrla og stela til að ná í fréttir“. 3. 28. október 2022: „Aðalsteinn er þrautþjálfaður í blekkingum.“ „Aðalsteinn var sendur á Stundina til að taka við þýfinu og koma í umferð“. „Engin rannsóknarvinna fór fram, aðeins byrlun og stuldur“. 4. 15. febrúar 2023: „Fimm blaðamenn RÚV og Heimildarinnar, áður Stundin og Kjarninn, fá birta ákæru næstu tvær vikurnar vegna aðildar að byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi tveggja starfsmanna Samherja, Páls Steingrímssonar og Örnu McClure. Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari lögreglunnar á Norðurlandi eystra staðfesti í viðtali við danska blaðamanninn Lasse Skytt að ákærur yrðu birtar fyrir lok mánaðar“. „Sjötti sakborningurinn er veika konan sem blaðamennirnir fengu til að byrla Páli, stela síma hans á meðan skipstjórinn var í öndunarvél og færa blaðamönnum sem biðu ránsfengsins á Efstaleiti…“. 5. 27. febrúar 2023: „Nýr vitnisburður, og gögn sem styðja þá frásögn, sýna fram á að blaðamennirnir hafi tekið þátt í að skipuleggja byrlunina, verið með í ráðum þegar í upphafi“. „Tölvupóstar sem staðfesta aðild blaðamanna að undirbúningi tilræðisins eru ekki lengur til. Þeim var eytt. „En það bráðlá á að Aðalsteinn færi yfir á Stundina til að vinna úr stolnu gögnum er kæmu á RÚV. Þá átti bara eftir að byrla skipstjóranum og stela síma hans þegar Aðalsteinn flutti blaðamennsku sína af RÚV yfir á Stundina“. „Ef einhver þessara samskipta eru til á texta, t.d. í tölvupóstum, er líklegt að sú sönnun haldi fyrir dómi. Annars er um að ræða kringumstæðurök fyrir aðild blaðamanna að skipulagningu tilræðisins auk vitnisburðar.” 6. 21. mars 2023: „Það er einnig þekkt staðreynd að varaformaður BÍ, Aðalsteinn Kjartansson, var fluttur af RÚV á Stundina…“ „Rök standa til að blaðamenn hafi skipulagt byrlun gagngert til að komast yfir síma skipstjórans“. „Tímann notuðu þeir til að hylja slóðina, eyða gögnum“. 7. 22. mars 2023: „Blaðamennirnir voru vel meðvitaðir um að hafa framið alvarlegt lögbrot og kappkostuðu að eyða sönnunargögnum“. „Blaðamenn RSK-miðla nýttu sér yfirburða stöðu sína og virðast hafa haft öll ráð veiku konunnar í hendi sér“. 8. 14. apríl 2023: „RSK-miðlar nýttu sér skotleyfið áður en það var gefið út. Þeir misnotuðu andlega veika konu til að byrla og stela.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Dómsmál Fjölmiðlar Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Páll segir dóminn efla sig frekar en hitt Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari og bloggari var í dag sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ærumeiðingar um Aðalstein Kjartansson, blaðamann Heimildarinnar. Hann ætlar að áfrýja málinu. 12. apríl 2024 14:50 „Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“ „Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“ hrópaði Páll skipstjóri Steingrímsson að Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns. Dómari þurfti að sussa á Pál svo málflutningur gæti haldið áfram. 20. mars 2024 06:01 Mest lesið Segir fæðingarorlofskerfið meingallað: „Ótrúlegt að þetta hafi viðgengist í svona langan tíma“ Innlent Framsóknarmenn boða til blaðamannafundar Innlent „Við erum með stórt sár á sálinni“ Innlent Tveir þjóðvarðliðar skotnir nálægt Hvíta húsinu Erlent Tugir á bráðamóttökuna á dag vegna hálku Innlent Að minnsta kosti 44 látnir og 280 saknað Erlent Fundar með Kristrúnu, Þorgerði og þingmönnum á Íslandi í dag Innlent Ákall íbúa leiðir til enn minni þéttingar í Grafarvogi Innlent Grunaður um að byrla konum svo þær migu á sig í starfsviðtali Erlent Hefur ekki fengið starfsleyfi eftir fimm mánuði: „Þetta hefur lagst þungt á mig“ Innlent Fleiri fréttir Vill fá svör um málsmeðferðartíma úrskurðarnefndar Fundar með Kristrúnu, Þorgerði og þingmönnum á Íslandi í dag Tugir á bráðamóttökuna á dag vegna hálku Framsóknarmenn boða til blaðamannafundar Segir fæðingarorlofskerfið meingallað: „Ótrúlegt að þetta hafi viðgengist í svona langan tíma“ Ákall íbúa leiðir til enn minni þéttingar í Grafarvogi Lögmannafélagið aðhefst ekki Allir Grindvíkingar fái að kjósa í Grindavík Stjórn RÚV vill vísa Ísraelum úr Eurovision Mjófirðingar segja laxeldi geta lyft byggðinni snöggt „Við erum með stórt sár á sálinni“ Grindvíkingar fá orðið, hálkuslys og frestun barneigna „Það er búið að vera steinpakkað“ Þakkar fjölmiðlaumfjöllun að grænt ljós fékkst „Fullkomið hneyksli“ ef Alþingi veitti Daða Má skattlagningarvald Vísuðu þremur frá Keflavíkurflugvelli Sóttvarnarlæknir gegnir embætti landlæknis tímabundið Semur um DNA-próf til að koma í veg fyrir ólöglegan flutning barna Staðfesta sextán ára dóm Dagbjartar Páll áfram í leyfi en leggur fyrirhugaðri nýrri stofnun lið Ekki hægt að treysta mælum vélarinnar þar sem afísunarvökvinn fraus Þekktu efnin enn þau vinsælustu Formaður Afstöðu vill á lista Samfylkingarinnar Andstaða almennings hvati til að búa vel um hnútana Búast við að mál lögmannsins verði fellt niður Ráðherra ræðir laxeldi í Mjóafirði og sprautusjúklingum fer fækkandi Þráhyggjuhegðunin staðið í fjórtán ár Losna við nágranna eftir þriggja ára baráttu Auknar líkur á kvikuhlaupi en óvissa um hvenær gýs næst Svarar til saka því barn í hans umsjá komst í hlaupbangsa Sjá meira
Þeir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður sama miðils, stefndu Páli fyrir meiðyrði og kröfðust ómerkingar á tvennum ummælum á bloggsíðu hans á vefsvæði Mbl.is. Annars vegar voru það ummæli um að tvímenningarnir hefðu átt „aðild, beina eða óbeina“ að því að Páli Steingrímssyni, skipstjóra hjá Samherja, hefði verið byrlað og síma hans stolið. Hins vegar voru það ummæli Páls um að saksóknari gæfi út ákæru á hendur blaðamönnunum. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var Páll dæmdur til að greiða blaðamönnunum 300 þúsund krónur, hvorum fyrir sig, auk málskostnaðar upp á 700 þúsund krónur. Landsréttur sýknaði Pál af öllum kröfum blaðamannanna, þegar dómur var kveðinn upp klukkan 14. Málskostnaður fellur niður á báðum dómstigum. Þá voru ummæli hans dæmd dauð og ómerk í héraði en ekki Landsrétti. Beinskeytt og óvægin ummæli sett fram í góðri trú Í dómi Landsréttar segir að þótt ummæli Páls væru sannarlega beinskeytt og óvægin, yrði að líta til þeirrar staðreyndar að Arnar Þór og Þórður Snær hefðu haft stöðu sakborninga og sætt, þegar ummælin féllu, rannsókn lögreglu vegna mögulegrar aðildar, beinnar eða óbeinnar, að brotum á ákvæðum hegningarlaga. Þá lægi fyrir að þeirri sakamálarannsókn væri ekki lokið. Líta yrði svo á að ummæli Páls hefðu falið í sér staðhæfingu um staðreynd og Páll hefði verið í góðri trú um að nægileg stoð væri fyrir þeim staðhæfingum þegar þau voru látin falla. Blaðamenn megi þola gagnrýni Páll hefði verið þátttakandi í almennri umræðu um mikilvægt samfélagslegt málefni sem erindi ætti við almenning og hefði af þeim sökum notið rúms tjáningarfrelsis á meðan Arnar Þór og Þórður Snær mættu sem blaðamenn og opinberar persónur gera ráð fyrir að þurfa að þola hvassa og óvægna gagnrýni í kjölfar eigin skrifa. Þegar til alls þessa væri litið yrði lagt til grundvallar að Páll hefði mátt vera í góðri trú um að nægjanlegt tilefni væri til ummælanna og að þau hefðu, þegar litið væri til hinnar hvössu umræðu sem málið hefði vakið, ekki gengið svo langt að nauðsyn bæri til þess í lýðræðislegu samfélagi, þar sem tjáningarfrelsi er í hávegum haft, að ómerkja þau. Annað mál á leið fyrir Landsrétt Páll var dæmdur til að greiða þriðja Heimildarmanninum, Aðalsteini Kjartanssyni, 450.000 krónur í miskabætur og 1,4 milljón króna í málskostnað vegna átta ummæla, sem voru dæmd dauð og ómerk þann 14. apríl síðastliðinn. Ummælin voru eftirfarandi. 1. 2. apríl 2022:: „Verðlaunin fengu þeir fyrir fréttir sem aflað var með glæpum, byrlun og gagnastuldi“. „…og Aðalsteinn Kjartansson á stundinni eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skiptstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans“. 2. 25. ágúst 2022: „Leikritið um að Aðalsteinn ynni á Stundinni, en ekki RÚV, var hluti af samráði um að byrla og stela til að ná í fréttir“. 3. 28. október 2022: „Aðalsteinn er þrautþjálfaður í blekkingum.“ „Aðalsteinn var sendur á Stundina til að taka við þýfinu og koma í umferð“. „Engin rannsóknarvinna fór fram, aðeins byrlun og stuldur“. 4. 15. febrúar 2023: „Fimm blaðamenn RÚV og Heimildarinnar, áður Stundin og Kjarninn, fá birta ákæru næstu tvær vikurnar vegna aðildar að byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi tveggja starfsmanna Samherja, Páls Steingrímssonar og Örnu McClure. Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari lögreglunnar á Norðurlandi eystra staðfesti í viðtali við danska blaðamanninn Lasse Skytt að ákærur yrðu birtar fyrir lok mánaðar“. „Sjötti sakborningurinn er veika konan sem blaðamennirnir fengu til að byrla Páli, stela síma hans á meðan skipstjórinn var í öndunarvél og færa blaðamönnum sem biðu ránsfengsins á Efstaleiti…“. 5. 27. febrúar 2023: „Nýr vitnisburður, og gögn sem styðja þá frásögn, sýna fram á að blaðamennirnir hafi tekið þátt í að skipuleggja byrlunina, verið með í ráðum þegar í upphafi“. „Tölvupóstar sem staðfesta aðild blaðamanna að undirbúningi tilræðisins eru ekki lengur til. Þeim var eytt. „En það bráðlá á að Aðalsteinn færi yfir á Stundina til að vinna úr stolnu gögnum er kæmu á RÚV. Þá átti bara eftir að byrla skipstjóranum og stela síma hans þegar Aðalsteinn flutti blaðamennsku sína af RÚV yfir á Stundina“. „Ef einhver þessara samskipta eru til á texta, t.d. í tölvupóstum, er líklegt að sú sönnun haldi fyrir dómi. Annars er um að ræða kringumstæðurök fyrir aðild blaðamanna að skipulagningu tilræðisins auk vitnisburðar.” 6. 21. mars 2023: „Það er einnig þekkt staðreynd að varaformaður BÍ, Aðalsteinn Kjartansson, var fluttur af RÚV á Stundina…“ „Rök standa til að blaðamenn hafi skipulagt byrlun gagngert til að komast yfir síma skipstjórans“. „Tímann notuðu þeir til að hylja slóðina, eyða gögnum“. 7. 22. mars 2023: „Blaðamennirnir voru vel meðvitaðir um að hafa framið alvarlegt lögbrot og kappkostuðu að eyða sönnunargögnum“. „Blaðamenn RSK-miðla nýttu sér yfirburða stöðu sína og virðast hafa haft öll ráð veiku konunnar í hendi sér“. 8. 14. apríl 2023: „RSK-miðlar nýttu sér skotleyfið áður en það var gefið út. Þeir misnotuðu andlega veika konu til að byrla og stela.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
1. 2. apríl 2022:: „Verðlaunin fengu þeir fyrir fréttir sem aflað var með glæpum, byrlun og gagnastuldi“. „…og Aðalsteinn Kjartansson á stundinni eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skiptstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans“. 2. 25. ágúst 2022: „Leikritið um að Aðalsteinn ynni á Stundinni, en ekki RÚV, var hluti af samráði um að byrla og stela til að ná í fréttir“. 3. 28. október 2022: „Aðalsteinn er þrautþjálfaður í blekkingum.“ „Aðalsteinn var sendur á Stundina til að taka við þýfinu og koma í umferð“. „Engin rannsóknarvinna fór fram, aðeins byrlun og stuldur“. 4. 15. febrúar 2023: „Fimm blaðamenn RÚV og Heimildarinnar, áður Stundin og Kjarninn, fá birta ákæru næstu tvær vikurnar vegna aðildar að byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi tveggja starfsmanna Samherja, Páls Steingrímssonar og Örnu McClure. Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari lögreglunnar á Norðurlandi eystra staðfesti í viðtali við danska blaðamanninn Lasse Skytt að ákærur yrðu birtar fyrir lok mánaðar“. „Sjötti sakborningurinn er veika konan sem blaðamennirnir fengu til að byrla Páli, stela síma hans á meðan skipstjórinn var í öndunarvél og færa blaðamönnum sem biðu ránsfengsins á Efstaleiti…“. 5. 27. febrúar 2023: „Nýr vitnisburður, og gögn sem styðja þá frásögn, sýna fram á að blaðamennirnir hafi tekið þátt í að skipuleggja byrlunina, verið með í ráðum þegar í upphafi“. „Tölvupóstar sem staðfesta aðild blaðamanna að undirbúningi tilræðisins eru ekki lengur til. Þeim var eytt. „En það bráðlá á að Aðalsteinn færi yfir á Stundina til að vinna úr stolnu gögnum er kæmu á RÚV. Þá átti bara eftir að byrla skipstjóranum og stela síma hans þegar Aðalsteinn flutti blaðamennsku sína af RÚV yfir á Stundina“. „Ef einhver þessara samskipta eru til á texta, t.d. í tölvupóstum, er líklegt að sú sönnun haldi fyrir dómi. Annars er um að ræða kringumstæðurök fyrir aðild blaðamanna að skipulagningu tilræðisins auk vitnisburðar.” 6. 21. mars 2023: „Það er einnig þekkt staðreynd að varaformaður BÍ, Aðalsteinn Kjartansson, var fluttur af RÚV á Stundina…“ „Rök standa til að blaðamenn hafi skipulagt byrlun gagngert til að komast yfir síma skipstjórans“. „Tímann notuðu þeir til að hylja slóðina, eyða gögnum“. 7. 22. mars 2023: „Blaðamennirnir voru vel meðvitaðir um að hafa framið alvarlegt lögbrot og kappkostuðu að eyða sönnunargögnum“. „Blaðamenn RSK-miðla nýttu sér yfirburða stöðu sína og virðast hafa haft öll ráð veiku konunnar í hendi sér“. 8. 14. apríl 2023: „RSK-miðlar nýttu sér skotleyfið áður en það var gefið út. Þeir misnotuðu andlega veika konu til að byrla og stela.“
Dómsmál Fjölmiðlar Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Páll segir dóminn efla sig frekar en hitt Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari og bloggari var í dag sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ærumeiðingar um Aðalstein Kjartansson, blaðamann Heimildarinnar. Hann ætlar að áfrýja málinu. 12. apríl 2024 14:50 „Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“ „Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“ hrópaði Páll skipstjóri Steingrímsson að Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns. Dómari þurfti að sussa á Pál svo málflutningur gæti haldið áfram. 20. mars 2024 06:01 Mest lesið Segir fæðingarorlofskerfið meingallað: „Ótrúlegt að þetta hafi viðgengist í svona langan tíma“ Innlent Framsóknarmenn boða til blaðamannafundar Innlent „Við erum með stórt sár á sálinni“ Innlent Tveir þjóðvarðliðar skotnir nálægt Hvíta húsinu Erlent Tugir á bráðamóttökuna á dag vegna hálku Innlent Að minnsta kosti 44 látnir og 280 saknað Erlent Fundar með Kristrúnu, Þorgerði og þingmönnum á Íslandi í dag Innlent Ákall íbúa leiðir til enn minni þéttingar í Grafarvogi Innlent Grunaður um að byrla konum svo þær migu á sig í starfsviðtali Erlent Hefur ekki fengið starfsleyfi eftir fimm mánuði: „Þetta hefur lagst þungt á mig“ Innlent Fleiri fréttir Vill fá svör um málsmeðferðartíma úrskurðarnefndar Fundar með Kristrúnu, Þorgerði og þingmönnum á Íslandi í dag Tugir á bráðamóttökuna á dag vegna hálku Framsóknarmenn boða til blaðamannafundar Segir fæðingarorlofskerfið meingallað: „Ótrúlegt að þetta hafi viðgengist í svona langan tíma“ Ákall íbúa leiðir til enn minni þéttingar í Grafarvogi Lögmannafélagið aðhefst ekki Allir Grindvíkingar fái að kjósa í Grindavík Stjórn RÚV vill vísa Ísraelum úr Eurovision Mjófirðingar segja laxeldi geta lyft byggðinni snöggt „Við erum með stórt sár á sálinni“ Grindvíkingar fá orðið, hálkuslys og frestun barneigna „Það er búið að vera steinpakkað“ Þakkar fjölmiðlaumfjöllun að grænt ljós fékkst „Fullkomið hneyksli“ ef Alþingi veitti Daða Má skattlagningarvald Vísuðu þremur frá Keflavíkurflugvelli Sóttvarnarlæknir gegnir embætti landlæknis tímabundið Semur um DNA-próf til að koma í veg fyrir ólöglegan flutning barna Staðfesta sextán ára dóm Dagbjartar Páll áfram í leyfi en leggur fyrirhugaðri nýrri stofnun lið Ekki hægt að treysta mælum vélarinnar þar sem afísunarvökvinn fraus Þekktu efnin enn þau vinsælustu Formaður Afstöðu vill á lista Samfylkingarinnar Andstaða almennings hvati til að búa vel um hnútana Búast við að mál lögmannsins verði fellt niður Ráðherra ræðir laxeldi í Mjóafirði og sprautusjúklingum fer fækkandi Þráhyggjuhegðunin staðið í fjórtán ár Losna við nágranna eftir þriggja ára baráttu Auknar líkur á kvikuhlaupi en óvissa um hvenær gýs næst Svarar til saka því barn í hans umsjá komst í hlaupbangsa Sjá meira
Páll segir dóminn efla sig frekar en hitt Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari og bloggari var í dag sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ærumeiðingar um Aðalstein Kjartansson, blaðamann Heimildarinnar. Hann ætlar að áfrýja málinu. 12. apríl 2024 14:50
„Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“ „Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“ hrópaði Páll skipstjóri Steingrímsson að Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns. Dómari þurfti að sussa á Pál svo málflutningur gæti haldið áfram. 20. mars 2024 06:01
Segir fæðingarorlofskerfið meingallað: „Ótrúlegt að þetta hafi viðgengist í svona langan tíma“ Innlent
Segir fæðingarorlofskerfið meingallað: „Ótrúlegt að þetta hafi viðgengist í svona langan tíma“ Innlent