Talsverður hiti er að færast í leikinn og mögulega smá titringur í liðunum. FM957, sigurliðið frá í fyrra hefur ekki náð sér almennnilega á strik en Bylgjan, liðið sem FM957 hafði „núll áhyggjur” af og var „none factor“ í augum X977, kom sterkt inn í fyrstu áskorun dagsins, keilukeppninni þar sem fella átti turna af súkkulaði og rústaði keppninni.

Liðin tókust næst á í siglingu um Fjallsárlón þar sem þau kepptu um hvaða lið næði „bestu mynd af jökli.” Þar var lið X977 greinilega í mestum tengslum við náttúruna og náði bestu myndinni.
„Hvað ertu að teikna, skít?”

Lið Bylgjunnar var kannski dálítið hátt uppi eftir sigurinn í keilukeppninni gaf lítið fyrir ólystugar undirbúningsteikningar X-manna en nú kepptu liðin um hver steikti og framreiddi besta hamborgarann. Lið FM957 var sjálfsöryggið uppmálað í upphafi keppninnar og lofaði atgangurinn í eldhúsinu virkilega góðu. Dómarinn var hins vegar grjótharður. „Þessir tveir eru nánast eins,” sagði hann um hamborgara FM og Bylgjunnar. X-borgarinn rústaði þessu.

Mesta mýktin
Liðin nota Verna appið til að fylgjast með akstrinum en þau keyra hringinn á rafbílum, Bylgjan á Polestar, FM957 á Volvo og X977 á Ford Mustang. Eftir erfiðan keppnisdag skein stjarna FM loks skærast og þar kom nýliðinn og ökuþórinn Kristín Ruth sterk inn og rústaði aksturskeppninni, besta skorið, besti aksturinn og mesta mýktin.

Í lok annars keppnisdags leiðir „none factor” liðið Bylgjan með 11 stig, þá kemur X977 með 9 stig og sigurvegarar síðast árs FM957 reka lestina með 8 stig.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig dagurinn gekk fyrir sig:
En þetta er alls ekki búið og allt getur ennþá gerst. Fylgist með á samfélagsmiðlum útvarpsstöðvanna: @x977, @FM957, @bylgjan.