Hækkar verðmat Amaroq sem er 38 prósent yfir markaðsverði
![Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, og Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq. Amaroq Minerals var skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland í september.](https://www.visir.is/i/B6C4C6C8EC30B47D5E8E8CBF3FB65921068604E88CB49F0F635A5723F21DE88E_713x0.jpg)
Bandaríska fjármálafyrirtækið Stifel hefur hækkað markgengi sitt á auðlindafyrirtækinu Amaroq Minerals um tólf prósent frá því í febrúar. Meðal annars er bent að verð á gulli hafi hækkað um 15 prósent og að styttra sé að í að fyrirtækið fari að afla tekna. Í verðmatinu er gert ráð fyrir að það hagnist um tvo milljarða á næsta ári en fyrirtækið afli ekki tekna í ár.