Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Signature 10. maí 2024 08:32 Böðvar Friðriksson hjá Signature talar um endingartíma útihúsgagnana sem seld eru í Signature, en þau þola íslenska veðráttu einstaklega vel. Böðvar hjá Signature húsgögnum hefur selt útihúsgögn í yfir 20 ár. Alla tíð hefur áherslan verið á yfirburða gæði, fallega hönnun og umfram allt framúrskarandi og persónulega þjónustu. „
Þegar Signature hóf göngu sína vorið 2003 voru vönduð, viðhaldsfrí útihúsgögn hvergi fáanleg á Íslandi. Á markaðnum voru annað hvort timburhúsgögn sem þurftu auðvitað sitt reglulega viðhald, eða gömlu, hvítu plaststólarnir og borðin sem eru auðvitað orðin barn síns tíma. Við höfum frá upphafi sett okkar áherslu á falleg, nýstárleg og viðhaldsfrí útihúsgögn sem endast,” segir Böðvar. Skemmtilegast að vita af húsgögnunum endast vel Böðvar talar um endingartíma útihúsgagnana, sem þola íslenska veðráttu einstaklega vel. „Það er alltaf gaman að heyra af tíu, fimmtán ára gömlum útihúsgögnum sem ennþá eru í góðu gildi. Það gefur manni staðfestingu frá fyrstu hendi að gæðin sem við leggjum svo mikið upp úr, eru sannarlega til staðar.“ Þessi útihúsgögn hafa staðist tímans tönn en þau voru keypt árið 2004 í Signature. Signature staðallinn Þau útihúsgögn sem Signature býður upp á þurfa að uppfylla ákveðnar gæðakröfur. Þau eru smíðuð úr áli, sem er meðhöndlað með pólýhúðun, sem verndar álið gegn tæringu. Plastvafningur í útisófasettum og stólum er frostþolinn og UV varinn gegn geislum sólarinnar, og sessurnar eru vatnsfráhrindandi og þola þar af leiðandi vætu. Að auki hefur hefðbundnu timbri verið skipt út fyrir viðhaldsfrían gervivið í vörulínum Signature. „Við viljum umfram allt að húsgögnin okkar þoli íslenskt veðurfar. Þess vegna vinnum við náið með framleiðendum sem tryggja þau gæði sem við viljum bjóða okkar viðskiptavinum. Við köllum það Signature staðalinn,“ segir Böðvar. Plastvafningur í útisófasettum og stólum er frostþolinn og UV varinn gegn geislum sólarinnar, og sessurnar eru vatnsfráhrindandi. Mismunandi þarfir viðskiptavina Signature býður upp á ansi breytt úrval í útihúsgögnum og fylgihlutum. Allt frá stórum útisófasettum yfir í smærri lausnir fyrir svalir. „Við skilum að fólk er með mismunandi þarfir fyrir sitt heimili. Á sólpalla er fólk meira að horfa á stærri sófasett og jafnvel borð og stóla. Fyrir svalir erum við einnig með lausnir í smærri sófum, hægindastólum og bekkjum.“ Hengirólur hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár, og hefur aldrei verið jafn mikið úrval og þetta sumarið. „Hengirólurnar eru virkilega fallegar, og það er gaman að sjá að þær eru notaðar úti jafnt sem inni. Við erum með fimm mismunandi valmöguleika í hengirólum þetta sumarið, og hafa aldrei verið fleiri,“ segir Böðvar. Hengirólur hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Útisófasettin eru í miklu úrvali hjá Signature, og mismunandi áherslur í hönnun gefur viðskiptavinum kost á að velja það sem passar best á þeirra sælureit. Í gegnum tíðina hafa útisófasett með vafningi notið mestu vinsældana. „Þetta sumarið erum við með nokkrar útfærslur á þannig sófasettum í mismunandi litum. Það skiptir miklu máli að plastvafningurinn sé bæði frostþolinn og UV varinn til að þola íslenska veðráttu. Þar stöndum við framar öðrum á markaðnum þar sem öll okkar útihúsgögn eru framleidd með þetta í huga.“ Stílhrein hönnunin fer vel við nútíma byggingarstíl. Útisófasett með álgrind og sessum eru að koma sterk inn á markaðinn. Það er léttara yfirbragð yfir þannig settum sem passa vel með nýjum byggingastílum. „Cube settin okkar eru það nýjasta hjá okkur. Þar er meiri áhersla á álið og sessur, án plastvafnings. Álið er meðhöndlað með pólýhúðun sem verndar það gegn tæringu. Það eru straumar og stílar í útihúsgögnum eins og annarri hönnun og Cube er frábær viðbót í vörulínuna okkar,“ segir Böðvar. Cube settin eru þau nýjustu hjá Signature. Vatnsfráhrindandi sessur breyta leiknum Rigning er vissulega partur af íslensku sumri. Sessur í stólum og sófasettum Signature eru hannaðar sérstaklega með það í huga. „Sessurnar okkar eru vatnsfráhrindandi, sem þýðir að þú þarft ekki að flýta þér heim að bjarga þeim þegar byrjar að rigna. Auk þess erum við með mikið úrval af ábreiðum sem hægt er að breiða yfir húsgögnin þegar þau eru ekki í notkun. Þá geturðu alltaf gengið að útihúsgögnunum þínum hreinum og þurrum.“
Hús og heimili Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Fleiri fréttir MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Svefninn skiptir máli! Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk! Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi Sjá meira