Uppátækið hefur vakið mikla athygli þar sem það náðist á myndband og gagnrýna aðdáendur söngkonunnar hópinn harðlega. Svo virðist vera af myndbandinu að dæma sem viðkomandi hafi upphaflega sungið með söngkonunni líkt og aðrir tónleikagestir en svo farið að öskra.
Líkt og alþjóð veit hefur Laufey átt gríðarlega góðu gengi að fagna að undanförnu. Hún er á tónleikaferðalagi um þessar mundir í Bandaríkjunum og kom fram á tvennum tónleikum í Dallas í síðustu viku.
Öskrin hafa vakið mikla athygli og keppast aðdáendur Laufeyjar við að fordæma athæfið. „Þú mátt syngja með en það kemur sá tími þar sem þetta meiðir alla aðra í salnum,“ skrifar einn með myndbandinu. „Er erfitt að vera ekki svona ótrúlega dónalegur?“
„Þetta fólk fékk miða en ekki ég,“ skrifar annar aðdáandi. Einn segist hafa verið á staðnum og vorkennt Laufey. „Hún leit út fyrir að hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum,“ skrifar viðkomandi.