Ruddi niður eftirlitsmanni sem endaði á sjúkrahúsi Sindri Sverrisson skrifar 8. apríl 2024 11:32 Eftirlitsmaður leiksins féll í gólfið eftir að einn af leikmönnum Nexe ruddi honum niður. Skjáskot/Youtube Hætta þurfti toppslag Nexe og Zagreb í króatísku úrvalsdeildinni í handbolta eftir að einn af leikmönnum Nexe gekk harkalega utan í eftirlitsmann leiksins sem féll í gólfið og endaði á sjúkrahúsi.
Staðan var 16-9 fyrir Zagreb þegar leiknum var hætt en leikmönnum Nexe var heitt í hamsi vegna ákvarðana dómara leiksins. Fahrudin Melic hafði skorað mark fyrir Nexe úr hraðaupphlaupi en markið fékk ekki að standa þar sem að búið var að brjóta á honum, og dæma víti og tvær mínútur á leikmann Zagreb. Vítakastið var hins vegar aldrei tekið því upp úr sauð og það sem olli því að leiknum var hætt var að Slóveninn Marko Bezjak lét reiði sína bitna á Antu Josic, eftirlitsmanni leiksins. Eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan gekk Bezjak harkalega utan í Josic sem þurfti á aðhlynningu að halda, og fór svo á sjúkrahús samkvæmt króatískum miðlum. Dómarar leiksins tóku þá ákvörðun að ekki yrði haldið áfram að spila og óvíst er hvað gerist í framhaldinu, en miðillinn Telesport segir nær öruggt að Zagreb verði einfaldlega dæmdur sigur, þar sem atvikið verði túlkað sem árás á einn af starfsmönnum leiksins.
Handbolti Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Í beinni: Fram - Vestri | Heldur sigurganga Ísfirðinga áfram? Íslenski boltinn „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Í beinni: ÍBV - KA | KA-menn í vandræðum Íslenski boltinn Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti Fleiri fréttir Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Sjá meira