Þannig skelltu þau Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra og eiginkona hans Þóra Margrét Baldvinsdóttir sér í golfferð á Spáni. Þar voru líka leikarahjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson. Þau voru einmitt ítrekuð kölluð upp í kalkerfinu á Keflavíkurflugvelli og voru næstum búin að missa af flugferðinni út. Inga Lind Karlsdóttir lét sig heldur ekki vanta í sólina og á golfvellinum, steinsnar frá á eyjunni fögru Tenerife.
Það var einmitt brjálað að gera á Keflavíkurflugvelli yfir páskana og miklu fleiri þar heldur en bara þau Nína og Gísli. Þar lét Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda sig ekki vanta á leið í rómantíska ferð til Rómar með kærustunni Guðrúnu Rögnu Hreinsdóttur. Heldur ekki Hataraparið Sólbjört Sigurðardóttir og Einar Stefánsson. Anna Margrét Jónsdóttir fegurðardrottning naut sömuleiðis lífsins í þann mund sem hún var að fara til útlanda. Baldur Þórhallsson og Felix Bergsson létu sig ekki vanta í fjörinu utanlands heldur. Þeir komu aftur heim með flugi frá Berlín eftir helgina alþýðlegir á almennu farrými þar sem Baldur var með nefið ofan í símanum enda kosningabaráttan komin á fullt skrið.
Það voru ekki allir sem fóru til útlanda. Þess bar merki í sundlaugum landsins þar sem svo gott sem öll helstu stjörnur landsins nutu lífsins, meðal annars í Vesturbæjarlauginni. Þar sást Rúnar Freyr Gíslason verkefnastjóri RÚV í hrókasamræðum við þá Högna Egilsson og Björn Jörund Friðbjörnsson. Allir fastagestir í lauginni.
Þá lét annar hver leikari landsins sig ekki vanta í þessari goðsagnakenndu laug. Halldóra Geirharðsdóttir naut þar lífsins, líka Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir mögulegur forsetaframbjóðandi, Magnús Jónsson,Víkingur Kjartansson og Kjartan Guðjónsson. Þá má ekki sofa á tónlistarfólkinu sem mætti í laugina, þeim Flóna og Kalla Olgeirssyni og heldur ekki myndlistarfólkinu Finni Arnari Arnarsyni og Áslaugu Thorlacius.
Þó páskarnir snúist um sælgætis-og súkkulaðiát létu ekki allir það stoppa sig í heilsuræktinni. Sveinn Andri Sveinsson bræddi af sér páskaeggið á hlaupabretti í Laugum. Þar var líka ofurparið Logi Geirsson og Inga Tinna Sigurðardóttir á sjálfan páskadag. Birta Líf Ólafsdóttir var einnig á svæðinu, í Laugar Cafe. Örstutt frá var Sölvi Tryggvason í Laugardalslaug. Hann gekk beina leið úr útiklefanum í sjópottinn en athygli vekur að hann er elgtanaður enda nýkominn til landsins frá Asíu þar sem hann sleikti sólina á milli ísbaða.
Þrátt fyrir að fara ekki til útlanda létu margir það ekki stöðva sig í því að njóta lífsins. Sigurður Örn Hilmarsson formaður lögmannafélags Íslands tók fjölskylduna og vini með í aprés ski á Siglufirði eins og svo margir landsmenn sem nutu lífsins á Norðurlandi. Aðrir létu sér nægja að njóta lífsins í Reykjavík eins og til dæmis Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslunnar sem naut lífsins á Jómfrúnni á föstudaginn langa.