Kirkjunnar fólk messar yfir Berglindi og Gísla Ólafur Björn Sverrisson skrifar 24. mars 2024 12:04 Það mæltist illa fyrir hjá kirkjunnar fólki, að Berglind skyldi burðast með stærðarinnar kross í Smáralind. vísir Innslag Berglindar Festival í spjallþættinum Vikunni með Gísla Marteini, þar sem inntakið er fáviska landans um uppruna páskana, hefur vakið misjöfn viðbrögð. Kirkjunnar fólk notar píslarsöguna úr Biblíunni til að sýna fram á meinta vitleysu sjónvarpsfólksins. „
Okkur langar að þakka Rúv fyrir helgileikinn um Jesú á krossinum sem boðið var upp á hjá Gísla Marteini á föstudagskvöldið. Það er vandséð hvernig hefði mátt gera þetta betur. Allt var svo fyndið og skemmtilegt þegar Berglind Festilval fór með krossinn í Smáralind og spurði skrýtinna spurninga um lærisneiðar, krossfitt og alls konar svo fólk varð bara ringlað og hló og hló.“ Í slíkum kaldhæðnistón hefst skoðanagrein prestshjónanna Bjarna Karlssonar og Jónu Hrannar Bolladóttur og líkja innslaginu við dæmisögu úr guðspjöllunum sem fjallar um ferð Jesú á Golgatahæð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem óánægja myndast með það sem kalla mætti guðlast á Rúv. Árið 1997 var Spaugstofan kærð fyrir guðlast af Ólafi Skúlasyni biskupi. Spaugstofumenn sluppu með refsingu en málið vakti mikla athygli. Sonur Ólafs, Skúli S. Ólafsson er einmitt einn af þeim hefur gagnrýnt innslagið á föstudagskvöld. Í innslaginu sjálfu fór Berglind Festival venju samkvæmt á stúfana og, eins og áður segir, varpar ljósi á það hve lítið hinn almenni borgari veit um uppruna helgidaganna í kringum páskana. Ræddi hún við fólk í Smáralind og spurði þau spjörunum úr. Hve langur föstudagurinn langi hafi verið, hvað hafi gerst á pálmasunnudegi og hversu margar „lærisneiðar“ hafi verið. Loks gátu viðmælendur spreytt sig í „kross-fit“, sum sé æfingar með stærðarinnar krossi sem Berglind hafði með í för. Fólk gat alla jafna ekki svarað spurningunum rétt. „Fyndið“ að skottast með krossinn Þau Bjarni og Jóna rekja dæmisöguna um ferð Jesú á Golgatahæð, þar sem gys var gert að Jesú, hann færður í kjánalegan kóngabúnig. Þá var hann látinn drekka vín með galli og spurður hvers vegna hann gæti ekki bjargað sér, að krossfestingu lokinni. Bjarni og Jóna skrifa: „Loks toppaðist sprellið algerlega þegar annar nafnlausu ræningjanna sem héngu þarna sitt voru megin, og var sjálfur að fara að drepast, blandaði sér í fjörið: „Ert þú ekki Kristur? Bjargaðu sjálfum þér og okkur!“ Við þetta útspil úr algerlega óvæntri átt hafa m.a.s. óbreyttir hermenn leyft sér að hlægja svo að glamraði í sverðum og skjöldum. Þess vegna var svo gott hjá Berglindi Festival að hafa svona ólíkt fólk á öllum aldri í helgileiknum og líka ein virkilega fín og flott hjón sem þjóðin þekkir,“ skrifa þau Bjarni og Jóna og vísa til hjónanna Halldórs Benjamíns Þorbergssonar og Guðrúnar Ásu Björnsdóttur. „Fólk sem hefur allt og þarf ekkert að óttast neitt svona eins og kom fyrir Jesú. Fyndið að sjá einmitt þau skottast um með krossinn á milli sín í Smáralindinni.“ Komst ekki inn vegna hljóðvandræða Að innslaginu loknu sagði Berglind frá því að viðtal við konu eina, sem hafi „vitað eiginlega allt“. Hljóðið hafi hins vegar klikkað og því hafi hún ekki verið með. Bjarni og Jóna setja konu þessa í brennidepil síðari hluta greinarinnar. Hún viti eflaust allt um það sem átti sér stað á Golgata og upplýst Berglindi og alþjóð um mikilvægi trúarinnar í hennar lífi. Það væri hins vegar „spoiler“ fyrir helgileikinn sem fram hafi farið í sjónvarpinu þetta kvöldið. „Við veðjum að konan sem ekki passaði í helgileikinn verður í hópi þeirra þúsunda hér á landi og milljónanna um allan heim sem næsta fimmtudagskvöld, skírdagskvöld, ganga til altaris að taka við líkama og blóði Jesú í brauði og víni. Þannig mun hún staðfesta fyrir sjálfri sér og öllum sem vilja vita það, að hún lítur ekki niður á neinn og neitar jafnframt að lúta valdinu sem á öllum öldum drepur skellihlægjandi. Kanski mun hún líka sitja og hlusta á Passíusálma á föstudaginn langa. Þeir eru mjög fyndnir eins og þjóðin veit.“ skrifa þau Bjarni og Jóna í grein sem má lesa í heild sinni hér. Sársaukinn lagist ekki með gríni Fleiri taka undir með þeim hjónum. Þar á meðal fyrrnefndur Skúli S. Ólafsson prestur í Neskirkju og Vígfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur. „Afbragð, beint í mark. Þau þrjú sem nú bjóða fram krafta sína til biskups hafa vissulega margt fram að færa. Ekki minnist ég þess þó að þau hafi hingað til hætt sér inn á svið opinberrar umræðu um kirkju og kristni eins og hér er gert með slíkum tilþrifum. Sjáum hvað gerist. Batnandi fólki ... og allt það,“ segir Skúli á Facebook. Vigfús Bjarni tekur krossinn sérstaklega fyrir. Dapurlegt sé að hann hafi verið gerður að gríni í þættinum. Táknið þýði þjáning, ómennsk þjáning. „Djók er þekktur varnarháttur, gott að hlæja og fíflast svo raunveruleikinn blasi ekki við, ruglar okkur í ríminu þannig að við skynjum ekki lengur hvað gerðist. Krossinn lýsir algjörri þjáningu,“ skrifar Vigfús Bjarni og fjallar nánar um krossinn og merkinu hans fyrir trúað fólk og hann sjálfan. Sársaukinn lagist ekki með gríni. „Það er mikilvægt að bera virðingu fyrir trú fólks og tilfinningum, eða skiptir ekkert máli. Gott fyrir biskupsframbjöðendur og forsetaframbjóðendur að svara, þau munu jú ávarpa siðinn og sögu þjóðar. Hvaða merkingu hefur þetta allt saman?“
Þjóðkirkjan Ríkisútvarpið Páskar Grín og gaman Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Fleiri fréttir Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Sjá meira