„Þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. mars 2024 08:00 Það verður skrýtið fyrir Gylfa að horfa á leik kvöldsins í sjónvarpinu. Vísir/Vilhelm Gylfi Þór Sigurðsson þreytti frumraun sína með Val gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Síðustu mánuðir hafa verið honum strembnir og þá verður skrýtið fyrir hann að vera ekki með landsliðinu í kvöld.
Gylfi Þór yfirgaf Lyngby í Danmörku í janúar eftir að hafa meiðst. Hann hélt til Spánar hvar hann æfði einn og sinnti endurhæfingu ásamt sjúkraþjálfaranum Friðriki Ellert Jónssyni sem fylgdi honum út. Eftir nokkrar vikur af þeim æfingum komst hann í smá fótbolta á æfingum hjá Fylki og svo Val sem fóru í æfingaferð ekki langt frá honum á Spáni. Hann var staðráðinn í því að ná sér fyrir landsleikina sem fram undan eru en var að endingu ekki valinn í hóp Åges Hareide. Hann segir þetta hafa verið strembinn tíma. „Ég var í sjúkraþjálfun í nóvember og desember og æfði eitthvað. En ekkert gekk. Í lok janúar ákvað ég að fara í heitara loftslag og æfa á grasi. Þá byrjuðu hlutirnir að ganga og gátu ekki gengið betur fyrir sig eftir að ég byrjaði æfa úti. Ég var ánægður með það,“ „En ég viðurkenni það að þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir því ég vissi ekki hvort þetta yrði ein vika eða fimm mánuðir. Það var svona erfiðast í þessu,“ segir Gylfi. Vonar innilega að Ísland fari alla leið Það voru því heldur einmanalegir mánuðir hjá Gylfa á Spáni áður en hann komst á æfingar hjá íslensku liðunum þar ytra. Það voru Gylfa þá vonbrigði að vera ekki í hópnum sem spilar í Ísrael í kvöld og verður skrýtið fyrir hann að horfa á leikinn á sófanum. „Ég er bara þannig gerður að mig langar að spila fyrir Ísland þó að maður sé meiddur. Ég var alltaf að fara að gera allt, bæði fyrir mig persónulega til að ná mér góðum, og til að ná landsleikjunum. Eftir á að hyggja er jákvætt að maður sé óánægður að vera ekki í hópnum. Þegar manni er alveg sama held ég að sé gott að fara að hætta,“ segir Gylfi. Hvernig verður að fyrir þig að horfa á leikinn? Er enn eftirsjá af því að vera ekki á staðnum? „Að sjálfsögðu. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur og sem íþróttamaður vill maður vera í stærstu leikjunum og þar sem er mest pressa og mest undir. Það verður mjög spennandi og mjög erfitt að fylgjast með leiknum en auðvitað vonar maður innilega að við förum alla leið,“ segir Gylfi. Fréttina má sjá í spilaranum að ofan. Ísland mætir Ísrael í umspili fyrir EM klukkan 19:45 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport en upphitun hefst klukkan 19:10.
Landslið karla í fótbolta Valur Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla Tengdar fréttir „Það er kannski ekkert gáfulegt“ Gylfi Þór Sigurðsson segist treysta sér til að spila meira í kvöld en honum ef til vill leyfist. Hann mun þreyta frumraun sína fyrir Val gegn ÍA í Lengjubikarnum. 20. mars 2024 14:39 Afhjúpa númerið hans Gylfa í gæsahúðarmyndbandi Gylfi Þór Sigurðsson sem skrifaði undir tveggja ára samning við Valsmenn fyrir skömmu mun leika sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn ÍA í undanúrslitum Lengjubikarsins á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. 20. mars 2024 11:01 Myndir af Gylfa á fyrstu æfingunni á Íslandi sem leikmaður Vals Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Val eru mættir heim til Íslands eftir æfingabúðirnar á Spáni. 19. mars 2024 11:20 „Óskiljanlegt að Gylfi sé ekki valinn í landsliðið“ Íslenska karlalandsliðið var tilkynnt í gær og finnst mörgum það vera ótrúlegt að Gylfi Þór Sigurðsson hafi ekki verið valinn í hópinn. 16. mars 2024 09:30 Flestir spenntir fyrir Gylfa en ekki allir Mikil spenna virðist vera á meðal Valsara vegna komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til liðsins. Púlsinn var tekinn meðal almennings í Valsheimilinu í gær. 15. mars 2024 15:01 „Kunnum að reikna á Hlíðarenda og þetta er vel innan allra marka“ Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, fagnar komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins. Hann segir hafa verið snúið að ganga frá samningum en þó ekki að fjármagna samninginn sem sé innan velsæmismarka. 15. mars 2024 12:31 Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti „Bæði lið eru á felgunni“ Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Sjá meira
„Það er kannski ekkert gáfulegt“ Gylfi Þór Sigurðsson segist treysta sér til að spila meira í kvöld en honum ef til vill leyfist. Hann mun þreyta frumraun sína fyrir Val gegn ÍA í Lengjubikarnum. 20. mars 2024 14:39
Afhjúpa númerið hans Gylfa í gæsahúðarmyndbandi Gylfi Þór Sigurðsson sem skrifaði undir tveggja ára samning við Valsmenn fyrir skömmu mun leika sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn ÍA í undanúrslitum Lengjubikarsins á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. 20. mars 2024 11:01
Myndir af Gylfa á fyrstu æfingunni á Íslandi sem leikmaður Vals Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Val eru mættir heim til Íslands eftir æfingabúðirnar á Spáni. 19. mars 2024 11:20
„Óskiljanlegt að Gylfi sé ekki valinn í landsliðið“ Íslenska karlalandsliðið var tilkynnt í gær og finnst mörgum það vera ótrúlegt að Gylfi Þór Sigurðsson hafi ekki verið valinn í hópinn. 16. mars 2024 09:30
Flestir spenntir fyrir Gylfa en ekki allir Mikil spenna virðist vera á meðal Valsara vegna komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til liðsins. Púlsinn var tekinn meðal almennings í Valsheimilinu í gær. 15. mars 2024 15:01
„Kunnum að reikna á Hlíðarenda og þetta er vel innan allra marka“ Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, fagnar komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins. Hann segir hafa verið snúið að ganga frá samningum en þó ekki að fjármagna samninginn sem sé innan velsæmismarka. 15. mars 2024 12:31