Vegið að heiðri Háskólans á Akureyri Ástþór Magnússon skrifar 2. mars 2024 10:30 Ég hef ávallt borið mikla virðingu fyrir Háskólanum á Akureyri sem framúrskarandi menntastofnun jafnvel á heimsmælikvarða. Það kom mér því verulega á óvart að verða fyrir aðkasti frá tveimur starfsmönnum skólans við heimsókn til Akureyrar s.l. fimmtudag. Alvarlegar ásakanir sem eiga ekki við rök að styðjast Svo gekk það alveg fram af mér þegar þriðji starfsmaðurinn misnotaði aðstöðu sína sem einn stjórnenda Háskólans á Akureyri til rógburðar með niðurlægjandi orðum um mig og mína örstuttu heimsókn í skólann við slúðurblaðið DV. Eftir honum hafði blaðamaður mjög alvarlegar ásakanir á mig sem eiga ekki við rök að styðjast. Ég hafði strax símleiðis samband við umræddan starfsmann, Gunnar Rúnar Gunnarsson sem sagður er forstöðumaður reksturs faseigna Háskólans á Akureyri. Ég vakti athygli hans á því að áburðurinn í DV hefði ekki við rök að styðjast. Svar hans var að þetta hefði verið “fært í stílinn” af blaðamanni. Ég bað hann að draga ummælin sín til baka að öðrum kosti sæi ég ekki aðra leið en hann yrði að svara fyrir þennan áburð á mig fyrir Héraðsdómi. Hann tjáði mér í símtalinu að hann veldi þá leið, að málið fari áfram til dómstóla. Brot á almennum hegningarlögum Rógburður, meiðyrði og lygar af því tagi sem forstöðumaður fasteigna Háskólans á Akureyri er að bera á torg um mig á síðum sorpritsins DV er brot á almennum hegningarlögum og við slíku broti eru sektir eða fangelsi sem skipar þá viðkomandi á bekk sakamanna. Háskólinn á Akureyri og Menntamálaráðuneytið hljóta að skoða þetta mál og í framhaldinu kanna það hvort ástæða sé til að fela fólki sem fer svo frjálslega með sannleikann eins og hér ber vitni trúnaðarstörf og umsjón með opinberum byggingum og fjármunum. Samrýmist það stöðu forráðamanna menntastofnana að bera út slúður? Það samrýmist varla stöðu forráðamanna helstu menntastofnana landsins að lepja lygasölur í fjölmiðil sem hefur helst unnið sér það til frægðar að eitt fórnarlamb umfjöllunar blaðsins framdi sjálfsmorð sem gekk svo fram af þjóðinni að ritstjórnin hrökklaðist frá og blaðið lagði upp laupana sem dagblað og er nú ómerkilegur slúðurdálkur á netinu. ttps://www.deiglan.is/9484/ Ber Háskólinn á Akureyri skaðabótaábyrgð? Með þessu bréfi fer gef ég þér sem æðsta stjórnanda Háskólans á Akureyri tækifæri til að draga til baka áburð frá skólanum á mína persónu með opinberri yfirlýsingu. Að öðrum kosti verður þetta mál kært til Lögreglunnar en um er að ræða brot á 234-236.gr. almennra hegningarlaga að viðlagðri refsingu allt að tveggja ára fangelsi. Jafnframt verður höfðað meiðyrðamál fyrir dómstólum og þar sem um er að ræða einn æðsta stjórnanda skólans, verður það skoðað hvort stofnunin Háskólinn á Akureyri ber einnig skaðabótaábyrgð. Ummælin sem eiga ekki við rök að styðjast: „Uppákoma var í matsal Háskólans á Akureyri þegar Ástþór Magnússon mætti til að safna undirskriftum og kynna hugmyndir sínar varðandi framboð sitt til embættis forseta Íslands.” Ég kannast ekki við að hafa átt þátt í neinni uppákomu í matsal Háskólans á Akureyri. Ég var ekki vitni að orðaskiptum kvikmyndagerðarmanns við konu í matsal því ég snéri baki í þau og hvorki heyrði né tók þátt í samræðum þeirra. „Aðvífandi kom Gunnar Rúnar Gunnarsson, forstöðumaður reksturs fasteigna í háskólanum. Hann segir að Ástþór hafa verið að ræða við grunnskólabörn úr áttunda bekk, sem voru í starfakynningu.” Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Ég talaði aldrei við umræddan Gunnar, né sá hann. Ég ræddi heldur ekki við grunnskólabörn á leið minni um skólann s.l. fimmtudag. Í símtali mínu við Gunnar eftir að greinin birtist í DV tjáði hann mér að hann hefði þessa sögu eftir öðrum. Semsagt hrein gróusaga sem dreift er af einum æðsta stjórnanda Háskólans á Akureyri. „Þeir voru ekkert í háskólanemunum. Þeir fengu athugasemdir niður í sal vegna þess að þeir voru bara í grunnskólabörnum.“ Þetta á heldur við engin rök að styðjast. Ég fékk engar athugasemdir í sal og talaði ekki við nein grunnskólabörn. Gekk stuttan hring um þennan sal sem virtist opinn viðburður sem flæddi út í anddyri skólans þar sem einnig voru kynningarborð frá fyrirtækjum og stofnunum. Í þær fáeinu mínútur sem ég gekk hringinn og kíkti á kynningarbása kastaði ég kveðju á starfsmenn fyrirtækja og stofnana sem voru þarna til að kynna sína starfsemi. „Vaða inn í miðjar kynningar, inn í samræður, inn í allt“ Ég óð ekki inní neinar kynningar eða samræður. Kastaði aðeins kveðju á starfsfólk sýningarbása sem stóð við sín borð og sem voru ekki í samræðum við einn eða neinn. Er þetta fyrsta innlegg rekstors í kosningabaráttu um Bessastaði? Eyjólfur, þú hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að þú sért að íhuga forsetaframboð. Ekki veit ég hvort ofangreind aðför að mér í háskóla stofnuninni sem þú stýrir sé fyrsta innlegg þinna starfsmanna eða stuðningsmanna í kosningabaráttuna. Ég vona að kosningabarátta frá æðsta stjórnanda helstu menntastofnunar landsins verði málefnalegri en þetta. Ítrekaðar og upplognar mannorðsárásir í 28 ár Ég hef ítrekað mátt þola slíkar árásir í fjölmiðlum í þau 28 ár sem ég hef reynt að kynna þá hugmynd að embætti forseta Íslands beiti sér í friðarmálum á alþjóða vettvangi. Á sama tíma hafa íslenskir ráðamenn lagst á sveif með hergagnaframleiðendum, talað fyrir auknum hernaði, auknum fjárútlátum í vopn og notað skattfé þjóðarinnar til að greiða undir hergagnaflutninga. Ekki er ólíklegt að þeir tefli fram forsetaframbjóðanda til að standa vörð um hernaðarstefnuna á Bessastöðum. Ekki veit ég hvort þú verður slíkur frambjóðandi elítunnar, en ég vona amk að forsetakjör geti farið fram á málefnalegum grundvelli í stað rógburðs og slúðurs frá æðstu menntastofnunum landsins. Verði ummælin ekki dregin til baka með opinberri yfirlýsingu og afsökunarbeiðni til undirritaðs fyrir lok dags mánudaginn 4. mars 2024 verður málið sent áfram til lögmanns og lögreglu. Ofangreint er bréf sent til rektors Háskólans á Akureyri 2. Mars 2024 með afriti til Menntamálaráðherra. Höfundur er forsetaframbjóðandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ástþór Magnússon Háskólar Akureyri Skoðun: Forsetakosningar 2024 Mest lesið Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir Skoðun Daði Pálmar Ragnarsson Bakþankar Enginn stjórnmálaflokkur mun niðurgreiða sálfræðiþjónustu og útrýma biðlistum Þórarinn Hjartarson Skoðun Konur á örorku Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Við fylgjum þér frá getnaði til grafar Benedikt S. Benediktsson Skoðun Ef þið bara hefðuð séð heiminn út frá mínum augum: Börn & ADHD Stefán Þorri Helgason Skoðun Ekki sama hvaðan gott kemur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Börn í meðferð eiga rétt á fagfólki orð duga ekki lengur! Steindór Þórarinsson Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson Skoðun Sumt er bara ekki hægt að rökræða Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við fylgjum þér frá getnaði til grafar Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ef þið bara hefðuð séð heiminn út frá mínum augum: Börn & ADHD Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun 112. liðurinn í aðgerðaáætlun í menntamálum? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson skrifar Skoðun Konur á örorku Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Drambið okkar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Við vitum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Ekki sama hvaðan gott kemur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Börn í meðferð eiga rétt á fagfólki orð duga ekki lengur! Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Greindarskerðing eða ofurgáfur með gervigreind Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Homo sapiens að öðrum toga: Af hverju ætti ég eiginlega að mæta á PIFF-kvikmyndhátíðina? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Stöndum saman gegn fjölþáttaógnum Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hagræðing á kostnað fjölbreytni og gæðamenntunar Ida Marguerite Semey skrifar Skoðun Umbúðir en ekkert innihald í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Við viljum tala íslensku, en hvernig Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Mansalsmál á Íslandi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Hættur heimsins virða engin landamæri Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Tímamót í sjálfsvígsforvörnum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Yfirgangur, yfirlæti og endastöð Strætó Axel Hall skrifar Skoðun Hugsum fíknivanda upp á nýtt - Ný nálgun í meðhöndlun fíknivanda og áhættuhegðunar Svala Jóhannesdóttir,Lilja Sif Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Háskólinn á Bifröst – Öflugur og sjálfstæður fjarnámsskóli Sólveig Hallsteinsdóttir skrifar Skoðun Það eru fleiri fiskar í sjónum og fleiri sjónarmið í hafstjórn Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skapandi menntun skilar raunverulegum árangri Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Sex ára sáttmáli Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Stjórnendur sem mega ekki stjórna Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stokkhólmseinkenni sem við ættum að forðast Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Eflum iðnlöggjöfina og stöðvum brotin Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Pjattkratar taka til Þorsteinn Sæmundsson skrifar Sjá meira
Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir Skoðun
Enginn stjórnmálaflokkur mun niðurgreiða sálfræðiþjónustu og útrýma biðlistum Þórarinn Hjartarson Skoðun
Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar
Skoðun Homo sapiens að öðrum toga: Af hverju ætti ég eiginlega að mæta á PIFF-kvikmyndhátíðina? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Hugsum fíknivanda upp á nýtt - Ný nálgun í meðhöndlun fíknivanda og áhættuhegðunar Svala Jóhannesdóttir,Lilja Sif Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Háskólinn á Bifröst – Öflugur og sjálfstæður fjarnámsskóli Sólveig Hallsteinsdóttir skrifar
Skoðun Það eru fleiri fiskar í sjónum og fleiri sjónarmið í hafstjórn Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar
Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir Skoðun
Enginn stjórnmálaflokkur mun niðurgreiða sálfræðiþjónustu og útrýma biðlistum Þórarinn Hjartarson Skoðun