Keypti 600 Bónuspoka og gerði úr þeim listaverk um fátækt Lovísa Arnardóttir skrifar 19. febrúar 2024 06:46 Sæmundur segir að hann hafi lengi velt því fyrir sér hvers vegna fátækt fái að þrífast í samfélaginu. Sæmundur Þór Helgason opnaði nýverið Af hverju er Ísland svona fátækt? í Nýlistasafninu. Hann segir að sýningunni sé „sú fegraða ímynd sem Ísland kynnir gjarnan út á við dregin í efa með því að varpa ljósi á ólíkar upplifanir mismunandi fólks í landinu.“
Fagurfræði sýningarinnar er innblásin af grafísku auðkenni matvöruverslunarinnar Bónus sem upphaflega var stofnuð til að tryggja viðskiptavinum sínum lægsta mögulega matvöruverð á Íslandi. Í innsetningu sinni þekur Sæmundur glugga Nýlistasafnsins með bónus pokum í reglubundnu mynstri sem umbreytir einnig birtu sýningarrýmisins. Á sama tíma er flatskjáum dreift um rýmið þar sem má sjá myndbönd af viðtölum sem Sæmundur Þór tók í aðdraganda jóla í Kringlunni þar sem þátttakendur voru spurðir um fátækt. Flatskjáirnir eru reistir með bleikum stál rörum í anda innréttinga bónus. „Mig langaði til að finna sýningarumgjörð sem myndi efnisgera fátækt á ódýran hátt. Mér fannst Bónus vera tákn þeirra minni á Íslandi. Verslunin var brauðryðjandi á sínum tíma hvað varðar verðlag,“ segir Sæmundur Þór. Hann segir að hann hafi ekki spurt leyfis eða haft neitt samráð við verslunina áður en hann notaði logo-ið þeirra í sýninguna. „Ég keypti bara 600 poka fyrir um 30 þúsund krónur. Krakkarnir sem afgreiddu mig voru spennt og vildu vita hvað ég ætlaði að gera við þá. Þetta var svo mikið magn. Ég sagði þeim að þetta væri fyrir myndlistarverk. En ég talaði ekki við verslunina því ég vildi ekki fá leyfi. Ég þurfti ekkert leyfi til að kaupa mér poka og gera verk úr þeim.“ Vann sjálfur í Bónus Sæmundur Þór segist sjálfur hafa reynslu úr Bónus því hann hafi starfað þar sem unglingur. Hann hafi hugsað um að hafa samband við einn sem enn starfi þar í dag en hafi svo ákveðið að sleppa því. „Ég ákvað bara að gera þetta svona frekar. Sem almennur viðskiptavinur,“ segir hann en að hann vonist til þess að aðstandendur verslunarinnar komi á sýninguna. „Það eru standar fyrir vídjóverkin sem þau hefðu kannski áhuga á að sjá.“ Sæmundur Þór segir að viðmælendur hafi verið valdir eru af handahófi. „Þeir gerðu stutt hlé á jóla innkaupunum til að leggja orð í belg. Gangar Kringlunnar voru á sama tíma hátíðlega skreyttir og sjá um að viðhalda stöðugum straumi varnings og verslunar.“ Skjáirnir eru festir á bleikar súlur í stíl við bleikt svíns-logo Bónus.Mynd/Sæmundur Þór „Það eru þrír skjáir með svörum við þremur ólíkum spurningum,“ segir Sæmundur en spurningarnar eru Hvað er fátækt, Er fátækt á Íslandi og hvers vegna ekki og sú síðasta er Hvernig getur Ísland risið upp úr fátækt. Spurður hvort að hann hafi merkt eitthvað sameiginlegt í svörum fólks segir Sæmundur að fólk hafi þar túlkað fátækt sem einhvers konar skort á lífsgæðum. „Fjárhagsleg eða félagsleg eða heilsufarsleg lífsgæði. Sumir sögðu líka að einsemd væri fátækt. Að eiga enga ástvini að.“ Hvað varðar aðra spurninguna segir Sæmundur Þór að flest svörin hafi snúið að samkennd. „Það skorti einhvers konar samkennd eða samheldni.“ Barnaleg en stuðandi spurning Sæmundur Þór segist hafa fengið boð fyrir nokkrum mánuðum að sýna í Nýlistasafninu „Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig fátækt þrífst í okkar samfélagi. Á sama tíma og það er lítið er það mjög dreifbýlt. En ég skil það ekki. Þetta er þannig innlegg í þá umræðu. En á sama tíma kannski barnaleg spurning. Þær eru settar upp á dálítið naív og stuðandi hátt,“ segir Sæmundur Þór og að hann hafi langað að gera heiðarlega rannsókn. „Verkið er þannig á mörkum einhvers konar fréttamennsku, félagsvísinda og listar,“ segir Sæmundur Þór. Hann segir að þegar enn þrífist fátækt á Íslandi sé greinilegt að ekki sé vilji hjá stjórnvöldum til að breyta því. „Það líka segir mér að við nýtum okkur kerfi sem þarfnast fátæktar og þeirra arðrændu til þess að virka.“ Hefur þú upplifað fátækt? „Já, ég get sagt það. Flest mín fullorðinsár hef ég lifað undir lágmarkstekjum. Ég fékk reyndar listamannalaun í fyrra sem gjörbreyttu þeim aðstæðum. En já, ég þekki það á eigin skinni hvernig er að ná ekki endum saman og hvaða áhrif það hefur á allar ákvarðanir. Hvernig maður forgangsraðar.“ Verk Sæmundar er hægt að skoða í Nýlistasafninu þar til 3. mars. Eins og má sjá á myndinni eru Bónus-pokar í gluggum safnsins. Hann segir þessa sýningu beint framhald af sýningu sem hann hélt í Hafnarhúsinu árið 2016. „Þá fékk ég þóknun frá listasafninu upp á 120 þúsund krónur sem átti að vera launin mín og fyrir efniskostnað. Ég tók þessa upphæð og fór í alla banksins og fékk fjármálaráðgjöf um það hvernig ég gæti ávaxtað þessum peningum og lifað á þeim til framtíðar,“ segir Sæmundur Þór og að í því hafi falist ákveðin mótmæli á þessum aðstæðum og kjörum sem honum voru þarna boðin. „Sýningin hét Ávöxtun og skapaði umtal í samfélaginu.“ Fleiri verk til sýningar Ásamt verki Sæmundar eru til sýnis verk úr safneign Nýlistasafnsins sem hafa verið gaumgæfilega valin út frá þeim svörum sem fengust í viðtölunum. Á sýningunni eru þau skoðuð út frá hugmyndum um auð og misskiptingu hans í samtíma samfélagi. Verkin eru til marks um að málefnið eigi sér djúpar rætur í þjóðarsálinni þrátt fyrir að ímyndarsköpun landsins kunni að gefa annað í skyn. Listafólk: Ásta Ólafsdóttir, Bjarki Bragason, Daði Guðbjörnsson, Erling Klingenberg, Geoffrey Hendricks, G.Erla, Hildur Hákonardóttir, Íris Elfa Friðriksdóttir, John Cage, Niels Hafstein, Rúna Þorkelsdóttir, Snorri Ásmundsson, Steingrímur Eyfjörð, Sæmundur Þór Helgason, Wiola Ujazdowska. Sýningarstjóri er Odda Júlía Snorradóttir. Grafísk hönnun: Gabríel Markan Kvikmyndataka: Arnar Ásgeirsson Framleiðandi: Odda Júlía Snorradóttir Tónlist: Magnus Moone Járnsmíði: Helgi Þór Jónsson Sérstakar þakkir: Brianna Leatherbury og Hrafnhildur Helgadóttir.
Listamannalaun Myndlist Félagsmál Efnahagsmál Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Fleiri fréttir Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Sjá meira