Í frétt RIA fréttaveitunnar, sem er í eigu rússneska ríkisins, segir að Navalní hafi misst meðvitund í morgun eftir göngutúr. Endurlífgunartilraunir hafi verið reyndar en þær hafi ekki borið árangur. Í fréttinni segir að dánarorsök liggi ekki fyrir enn.
Samstarfsmenn Navalnís og ráðgjafar hans hafa ekki staðfest andlát hans enn. Talskona hans segist engar upplýsingar hafa fengið, aðrar en þær sem birtar hafi verið af fangelsismálayfirvöldum í Rússlandi. Lögmenn hans eru sagðir á leið í fangelsið þar sem hann var í haldi en það er mjög einangrað í Síberíu.
The Federal Penitentiary Service of Russia in the Yamalo-Nenets Autonomous Okrug is spreading the news of Alexey Navalny's death in IK-3. We have no confirmation of this yet. Alexey's lawyer is currently on his way to Kharp. As soon as we have some information, we will report on
— (@Kira_Yarmysh) February 16, 2024
Leoníd Vólkov, starfsmannastjóri Navalnís, segir dauða hans ekki hafa verið staðfestan. Sé Navalní látinn sé staðreyndin sú að hann hafi verið myrtur af Pútín. Ekkert annað komi til greina.
Leonid Volkov, Navalny s chief of staff
— max seddon (@maxseddon) February 16, 2024
We have no grounds to believe state propaganda. If it s true, then it s not Navalny died, but Putin killed Navalny, nothing else. But I don t believe them for a second. https://t.co/COyxfT68K4
Navalní var 47 ára gamall en hann var síðasta sumar dæmdur í nítján ára fangelsi fyrir að stofna og fjármagna öfgasamtök. Hann hafði einnig reynt að bjóða sig fram til forseta gegn Pútín en var meinað að gera það.
Navalní mætti í dómsal í gær í gegnum fjarvistabúnað.
Yesterday Navalny looked to be fine during a court hearing where he spoke via video link from his penal colony pic.twitter.com/e8HoAnWsQB
— Francis Scarr (@francis_scarr) February 16, 2024
Áðurnefnd samtök unnu að því að opinbera spillingu embættismanna í Rússlandi. Forsvarsmenn samtakanna skipulögðu einnig mótmæli í Rússlandi og héldu utan um gagnagrunn sem átti að gera kjósendurum auðveldara að finna frambjóðendur í kosningum sem áttu möguleika á að fella frambjóðendur flokks Pútíns.
Sjá einnig: Kreml vængstífir samtök Navalní
Hann hefur setið í fangelsi frá 2021 þegar hann hlaut tveggja og hálfs árs dóm fyrir að rjúfa skilorð vegna dóms frá 2014, sem Mannréttindadómstóll Evrópu hefur sagt gerræðislegan.
Sjá einnig: Refsing Navalnís þyngd um nítján ár
Ástæða þess að hann braut skilorðið var þó sú að eitrað hafði verið fyrir honum og hann lá við dauðans dyr á sjúkrahúsi í Þýskalandi. Navalní sakar Vladimír Pútin, forseta Rússlands um að bera ábyrgð á eitruninni en notast var við taugaeitrið Novichok, sem einnig var notað til að eitra fyrir fyrrverandi njósnaranum Sergei Skripal og dóttur hans.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði um sumarið 2021 að afleiðingarnar yrðu alvarlegar fyrir Rússland, ef Navalní myndi deyja í fangelsi. Hann sagðist hafa varað Pútín við því en tók ekki fram hvort hann ætlaði sér að grípa til einhverra aðgerða.
Hér má sjá hluta úr viðtali Christine Amanpour við Navalny árið 2020 þar sem hann sagði af hverju hann vildi snúa aftur til Rússlands, eftir að eitrað var fyrir honum.
Christiane Amanpour to Alexei Navalny: Why do you want to go back?
— Yashar Ali (@yashar) February 16, 2024
Navalny: I have to go back he [Putin] is killing people pic.twitter.com/VgSU8uG4n0
Hvarf í fangelsi
Undir lok síðasta árs virtist sem Navalní hefði týnst í fangelsi. Samstarfsmenn hans og lögmenn náðu ekki sambandi við hann eftir að hann birtist ekki í dómsal, í gegnum fjarskiptabúnað, tvo daga í röð.
Seinna meir kom í ljós að hann hafði verið fluttur í nýja fanganýlendu í Síberíu.
Sjá einnig: Navalní heilsast vel og sendir hátíðarkveðjur
Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, hefur tjáð sig um andlát Navalnís. Í samtali við blaðamenn í morgun sagði hann ekki ljóst af hverju Navalní hefði dáið.
Peskov indirectly confirms the death of the Russian opposition leader Alexey Navalny in prison. pic.twitter.com/Ebk4RszGlI
— WarTranslated (Dmitri) (@wartranslated) February 16, 2024