Hafi ætlað að hitta einhvern í garðinum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. febrúar 2024 23:11 Jóns Þrastar Jónssonar hefur verið saknað í fimm ár. Lögregluyfirvöld í Dublin telja nú líklegt að Jón Þröstur Jónsson hafi ætlað sér að hitta einhvern í almenningsgarðinum Santry Demense. Hann hafi látist í kjölfar þess fundar. Þetta herma heimildir írska miðilsins Dublin Live.
Eins og greint hefur verið frá hefur írska lögreglan efnt til leitaraðgerða í garðinum eftir að tvö bréf bárust sitthvorum aðila með nafnlausum upplýsingum um málið. Garðurinn er í um þriggja og hálfs kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem Jón Þröstur sást síðast, í febrúar 2019. Írski miðillinn hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum innan lögreglunnar að lögreglan óttist nú hið versta. Jón kunni að hafa verið myrtur. Er haft eftir lögreglunni að Jón hafi á fundinum ætlað sér að nálgast frekara fjármagn til pókerspilunar. Lögregla telji að mögulega hafi komið til átaka á fundinum og líki hans komið fyrir í almenningsgarðinum í kjölfarið. Haft er eftir lögreglunni að nægilegt magn upplýsinga hafi verið til staðar í bréfunum svo tilefni þyki til þess að leita að jarðneskum leifum Jóns í garðinum. Bréfin tvö fóru annars vegar til lögreglu og hins vegar til prests í borginni. Fram kemur í frétt írska miðilsins að leit hafi farið fram í dag í garðinum. Henni verði haldið áfram á morgun. Meðal annars verður kafað í stöðuvatni í garðinum auk þess sem leitarhundar verða notaðar.
Leitin að Jóni Þresti Írland Íslendingar erlendis Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira