Opið bréf til Bjarna Benediktssonar Margrét K Blöndal skrifar 20. janúar 2024 13:30 Hann virðist eiginlega alveg á floti, skilningurinn en kannski ekki síður söguþekking ykkar sjálfstæðismanna sem hafið tjáð ykkur um mótmæli tjaldbúðanna á Austurvelli. Það er nú vonandi að þér sé kunnugra um helstu söguþætti Austurvallar en flokksbróður þínum Birgi Þórarinssyni (sem einnig hefur tjáð áhyggjur sínar af sama máli) þ.e þá staðreynd að Jóni okkar Sigurðssyni var reist sú stytta sem við þekkjum og stendur á Austurvelli vegna þess að hann var einn helsti mótmælandi Íslandssögunnar. Einmitt vegna þess árangurs sem hlaust í kjölfar frægustu mótmæla okkar sögu og Jón Sigurðsson fór fyrir, “vér mótmælum allir”. Hefur Austurvöllur verið einn helsti vettvangur mótmæla, æ síðan. Við gætum nefnt mótmæli sem þér ættu, Bjarni Benediktsson, að vera sértaklega vel kunn þ.e þau mótmæli almennings sem brutust út seinast í mars, sérstaklega þann 30. árið 1949 þegar fréttist að Alþingi hefði samþykkt inngöngu í hernaðarbandalagið NATO. Þess sama hernaðarbandalags sem þú nú, með einörðum stuðningi þinnar ríkisstjórnar gengur nú keikur, allra erinda. Með færslu þinni í gær sem og framgöngu á undanförnum dögum hefur þú stigið fastar til jarðar en venjulega um að opinbera viðhorf þín og raunverulegt innræti, svo allir megi skilja. Þegar fjórða eldgosið í röð á stuttum tíma hófst síðastliðinn sunnudag og ljóst varð að allir íbúar Grindavíkur, sem höfðu um nokkurt skeið lifað milli vonar og ótta um framtíð sína og þurftu enn einn ganginn að leggja á flótta frá heimilum sínum, út í óvissuna, þegar heimsbyggðin öll (og þú þar meðtalinn) hafði horft upp á 100 daga atrennu viðurstyggilegs þjóðarmorðs Ísraelsstjórnar og hers á Palestínsku þjóðinni, í atrennu þar sem meira en 24 þúsund manneskjur hafa verið drepnar að kalla má í beinni útsendingu, beint fyrir framan augun á þér, þegar þér, sem hefur margsinnis og ítrekað verið gerður ljós tilgangur friðsamlegra mótmælanna á Austurvelli, þar sem Palestínskir flóttamenn hafast við í ískulda í tjaldbúðum á þessum sögulega táknræna stað og þú, meðvitaður um það hefur ekki virt viðlits beiðnir þeirra um samtal, þegar þér, sem ætti með réttu bæði að vera ljúft og skylt, í öllu falli skylt að greiða götu og virða mannréttindi þessa sama fólks á ögurstundu, þá bregstu því. Þitt viðbragð, Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, við afleiðingum blóðsúthellinga og stríðsglæpa Ísraelshers á Gaza undanfarna 100 daga og náttúruhamförunum á Reykjanesskaga um síðustu helgi, aðstæður sem þér ber skilyrðislaus skylda sem ráðherra til að sinna af öllum mætti var, að þú skelltir þér erlendis á handboltaleik. Þitt innlegg, þitt svar við neyð alls þessa fólks sem hafði þurft að flýja heimili sín, lengur eða skemur og þér ber sem ráðherra skylda til að vinna öllum árum að greiða fyrir lausn mála fólks á örlagastundu þá valdir þú að fara í flippferð með vinum, til að horfa á boltaleik. Þannig sýndirðu öllu því flóttafólki, bæði palestínsku og grindvísku hvort heldur megnustu fyrirlitningu þína eða botnlausa andlega fátækt. Ég veit ekki hvort er verra. Það er í öllu falli lýsandi fyrir siðferðið, sinnuleysið og letina, sem er það eina sem þið í ríkisstjórn þessa lands sýnið í verki. Ég hef enga trú á öðru en að þú teljir að þú og þín ríkisstjórn sem nefnd er eftir vinkonu þinni Katrínu Jakobsdóttur komist áfram upp með svívirðilegt framferði gagnvart fólki í neyð, rétt eins og aðra svívirðu. Enda varstu aldeilis ekki af baki dottinn í færslu gærdagsins, hélst ótrauður áfram, hugdjarfur talandi af lítilsvirðingu um flóttafólk, viðraðir fasískar hugmyndir þínar og fyrirætlanir um herta löggæslu og drauma ykkar sjálfstæðismanna um fangabúðir fyrir fólk sem þið hyggist loka inni rétt áður en þið fleygið því út á guð og gaddinn. Svei ykkur. Megi ykkar fasísku gildi brenna upp í því heimskuvíti sem þau eru sprottin úr. Með kveðju, Margrét K.Blöndal. Höfundur er söngkona Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Hælisleitendur Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Sjá meira