Samkeppniseftirlitið segir aðhaldskröfur ekki standast neina skoðun Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. desember 2023 11:22 Páll Gunnar Pálsson, er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Vísir/Arnar Samkeppniseftirlitið er harðort í viðbótarumsögn sinni um nýtt fjárlagafrumvarp og segir eftirlit með samkeppni á Íslandi í grafalvarlegri stöðu. Framlög til eftirlitsins séu lækkuð á sama tíma og umsvif í efnahagslífinu aukist.
Í umsögn þess segir Samkeppniseftirlitið að það hafi ítrekað varað stjórnvöld við þeim þrönga stakk sem því hefur verið skorinn og leitt hefur til þess að það hefur átt í erfiðleikum með að sinna lögbundnum skyldum sínum. Draga úr starfsemi Segir Samkeppniseftirlitið að vegna þessa hafi það þurft að beita forgangsröðun verkefna og þannig neyðst til að draga úr starfsemi í mikilvægum verkefnaflokkum. Það hafi reglulega komið því á framfæri við stjórnvöld síðustu ár, allt frá árinu 2020. Bent er á að fjárframlög til eftirlitsins muni lækka um tuttugu prósent frá árinu 2014 til 2024 á föstu verðlagi. „En á sama árabili munu umsvif í efnahagslífinu aukast um og yfir 35- 40%. Á sama tíma hafa ný verkefni bæst við og meiri kröfur gerðar, t.d. um rannsókn samrunamála. Þessi þróun er komin langt út fyrir öll þolmörk, sbr. umsögn til fjárlaganefndar, dags. 14. nóvember, og fylgiskjal með henni.“ Skerðingin standist enga skoðun Samkeppniseftirlitið segir ennfremur í umsögn sinni að það standist enga skoðun að stjórnvöld taki ekki tillit til þessarar þróunar við ákvörðun um fjárheimildir, heldur geri þvert á móti aðhaldskröfu til eftirlitsins. Það eigi sérstaklega við þegar ljóst sé að viðurkennt sé að samkeppni á mikilvægum mörkuðum á Íslandi sé ábótavant. Fyrri rannsóknir Samkeppniseftirlitsins, sem margar hafi verið staðfestar af dómstólum, varpi skýru ljósi á þetta. „Sömuleiðis liggur fyrir að samkeppnishindranir geta verið sérstaklega skaðlegar í litlum hagkerfum. Efling samkeppni eru rétt viðbrögð við efnahagserfiðleikum, þ.á.m í ríkjandi aðstæðum verðbólgu og verðhækkana. Breið samstaða er um það meðal þjóða að virk samkeppni á mörkuðum stuðli til lengri tíma að heilbrigðri atvinnustarfsemi og þar með traustara efnahagslífi.“ Þá bendir Samkeppniseftirlitið á að Seðlabankinn og ýmsir ráðherrar í núverandi ríkisstjórn hafi bent á þetta. Víða væri verið að styrkja samkeppniseftirlit meðal nágrannalanda Íslands. Skerði ábata af íhlutunum Þá bendir Samkeppnieftirlitið á að í júlí 2022 hafi Ríkisendurskoðun lokið stjórnsýsluúttekt þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að engir stórir ágallar væru á starfsemi eftirlitsins. Lagðar hafi verið til ýmsar aðgerðir til þess að styrkja eftirlitið enn frekar. „Sumar þessara aðgerða kalla á auknar fjárheimildir. Enn hefur ekki verið tekið tillit til þessara tillagna í fjárheimildum til eftirlitsins.“ Segir Samkeppniseftirlitið að ein af styrkingartillögum Ríkisendurskoðunar hafi verið að framkvæma skyldi reglubundið mat á ábata af íhlutunum Samkeppniseftirlitsins, sem rýnt væri af utanaðkomandi aðila. Á næstunni verði slíkt ábatamart birt í samræmi við þessi tilmæli. „Niðurstöður ábatamatsins sýna að á árabilinu 2013-2022 hefur árlegur reiknaður ábati af íhlutunum Samkeppniseftirlitsins numið um 18-31 földum fjárveitingum til eftirlitsins, eða 0,31% - 0,53% af vergri landsframleiðslu.“ Segir eftirlitið að í gildandi fjármálaáætlun séu sett markmið um að reiknaður ábati af starfi eftirlitsins skuli nema 0,5 prósent á hverju tíu ára tímabili. Miðað við gildandi og fyrirhugaðar fjárheimildir eftirlitsins megi ætla að þeim markmiðum verði ekki náð. Fer Samkeppniseftirlitið þess vinsamlegast á leit við fjárlaganefnd að fjárframlög til eftirlitsins verði tekin til frekari umfjöllunar. Að minnsta kosti verði eftirlitið ekki láta sæta þeirri skerðingu sem fyrirliggjandi frumvarp geri ráð fyrir. „Jafnframt ítrekar Samkeppniseftirlitið fyrri óskir sínar um að fá að koma fyrir nefndina. Á fundinum getur eftirlitið varpað nánara ljósi á þá skerðingu samkeppniseftirlits sem framundan er að óbreyttu fjárlagafrumvarpi.“
Fjárlagafrumvarp 2024 Samkeppnismál Alþingi Rekstur hins opinbera Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Sjá meira