Viktor Gísli lokaði markinu í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. desember 2023 22:00 Viktor Gísli Hallgrímsson varði fimmtán skot í marki Nantes í kvöld. HBC Nantes Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson varði fimmtán skot fyrir Nantes er liðið vann sjö marka sigur gegn Íslendingaliði Rhein-Neckar Löwen í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 32-25.
Nantes og Rhein-Neckar Löwen höfðu þegar tryggt sér efstu tvö sæti riðilsins fyrir leik kvöldsins, en toppsætið var þó undir. Viktor og félagar höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu og náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik. Heimamenn leiddu með þremur mörkum í hálfleik, staðan 14-11. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik þar sem heimamenn náðu mest níu marka forskoti. Eftir það var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda og Nantes fagnaði að lokum sjö marka sigri, 32-25. Viktor Gísli Hallgrímsson átti frábæran leik í marki Nantes og varði 15 skot fyrir liðið, en Arnór Snær Óskarsson og Ýmir Örn Gíslason komust ekki á blað fyrir Rhein-Neckar Löwen. Þá skoraði Orri Freyr Þorkelsson átta mörk fyrir Sporting í sex marka sigri gegn CSM Constanta, 34-28, og Teitur Örn Einarsson skoraði sex í þrettán marka sigri Flensburg gegn Lovcen, 42-19. Stiven Tobar Valencia skoraði eitt mark fyrir Benfica er liðið vann fjögurra marka útisigur gegn Kristianstad, 27-31, en Tryggvi Þórisson komst ekki á blað fyrir Sävehof í jafntefli gegn Gorenje, 28-28. Að lokum skoraði Óðinn Þór Ríkharðsson fjögur mörk fyrir Kadetten Schaffhausen er liðið mátti þola fjögurra marka tap gegn Elverum, 31-27.
Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Fleiri fréttir Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Sjá meira