Gunni og Felix opnuðu Pakkajól Smáralindar í náttfötunum Smáralind og 21. nóvember 2023 09:58 Kór Hörðuvallaskóla í Kópavogi söng þegar ljósin á jólatrénu voru tendruð í Smáralind á laugardag og pakkasöfnunin Pakkajól hófst. Mikill fjöldi mætti í Smáralind á laugardag þegar ljósin á jólatrénu voru tendruð og pakkasöfnunin Pakkajól hófst.
Það voru þeir Gunni og Felix sem fengu þann heiður að tendra ljósin á jólatrénu og setja fyrstu gjafirnar undir jólatréð og mættu þeir félagar á náttfötunum við tilefnið. Um árabil hefur skapast sú jólahefð hjá mörgum að kaupa eina auka jólagjöf og setja undir jólatréð í Smáralind. Gjafirnar sem safnast fara til barna og unglinga á Íslandi sem búa við bág kjör. Hjálparstarf kirkjunnar, Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd úthluta gjöfunum þangað sem þeirra er þörf. Gunni og Felix fengu þann heiður að tendra ljósin á jólatrénu og setja fyrstu gjafirnar undir jólatréð. „Við hvetjum öll, sem tök hafa á, að leggja söfnuninni lið og gefa eina auka jólagjöf þannig að öll börn á Íslandi fái eitthvað fallegt um jólin. Gjöfin þarf að vera innpökkuð og merkt með upplýsingum um hvaða kyni og aldri hún er ætluð. Merkimiða má finna hjá jólatrénu eða á þjónustuborðinu á 2. hæð. Við tökum við gjöfum alveg fram að jólum. Fyrstu úthlutanirnar eru þó um miðjan desember þannig að því fyrr sem gjafirnar berast því betra,” segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar. Pósturinn leggur söfnuninni lið og sendir gjafir frá þeim sem búa á landsbyggðinni frítt til Smáralindar. Það eina sem þarf að gera er að nefna það í útibúi Póstsins að gjöfin sé fyrir Pakkajól. Nánari upplýsingar á vef Smáralindar.
Jól Mest lesið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Festist í lyftu í New York Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Tímabilið sem flestir vilja gleyma Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Alma stolt af syninum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira