Natasha kom inn af bekknum og tryggði Brann sigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. nóvember 2023 19:58 Natasha Anasi reyndist hetja Brann í kvöld. Brad Smith/ISI Photos/Getty Images Landsliðskonan Natasha Anasi reyndist hetja Brann er liðið heimsótti St. Polten í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld. Hún kom inn af bekknum og skoraði sigurmark gestanna í 1-2 sigri.
Natasha og stöllur hennar heimsóttu St. Polten sem sló Valskonur úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar og það voru gestirnir í Brann sem tóku forystuna með marki frá Rachel Engesvik á 57. mínútu. Heimakonur jöfnuðu þó metin á 68. mínútu, en aðeins mínútu síðar kom Natasha Anasi inn af varamannabekknum og átti hún heldur betur eftir að breyta gangi leiksins. Natasha skoraði sigurmark Brann þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Natasha reis þá hæst í teignum og stangaði hornspyrnu Marit Bratberg Lund í netið og tryggði gestunum um leið 1-2 sigur. Brann er því á toppi B-riðils Meistaradeildar Evrópu með þrjú stig eftir einn leik, en Lyon og Slavia Prag mætast síðar í kvöld. SK Brann back in front as Natasha Anasi heads it home 💥🏴 🎙️ 👉 https://t.co/XJVOgYLp6S🇩🇪 🎙️ 👉 https://t.co/jm70gdLUhX🇳🇴 🎙️ 👉 https://t.co/210iCEB9Hn#UWCLonDAZN pic.twitter.com/JwsWK7Ag2g— DAZN Football (@DAZNFootball) November 14, 2023 Á sama tíma máttu Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård þola 1-2 tap á heimavelli gegn Eintracht Frankfurt. Guðrún lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá heimakonum, en liðin leika í A-riðli með Barcelona og Benfica.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Fótbolti Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Fleiri fréttir Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Sjá meira