Metró maðurinn orðinn miðaldra Íris Hauksdóttir skrifar 1. nóvember 2023 15:06 Baldur Rafn Gylfason er hinn upprunalegi íslenski metró maður. aðsend Baldur Rafn Gylfason hárgeiðslumeistari var einn þeirra sem lagði grunn að innreið Metró mannsins til Íslands upp úr aldamótum.
Metró maðurinn leyfði sér meira en bara ljósabekki og strípur til að hressa upp á útlitið. Hann notaði líka snyrtivörur, krem og hárvörur sem ekki var algengt á þeim tíma. En nú er Metró maðurinn orðinn miðaldra og neyðist til að takast á við hækkandi kollvik, lélegan hvirfil, bauga og hrukkur. Baldur Rafn gengst heilshugar við því að vera ein helsta fyrirmynd Metró mannsins en hann nýjasti gestur Einars Bárðarsonar í hlaðvarpsþættinum Einmitt. Í þættinum fara þeir um víðan völl og vopna metró manninn inn í miðaldra slaginn. Lærði hárgreiðslu undir leiðsögn goðsagnar Baldur lauk sveinsprófi í hársnyrtiiðn á samningi hjá goðsögninni Karli Berndsen. Baldur og Guðmundur félagi hans opnuðu stofuna Mojo á Vegamótastíg og í framhaldi af því keyptu þeir stofuna Monroe og sameinuðu þær undir nafninu Mojo Monroe. Baldur breytti svo til í lok áratugarins og í framhaldi af því stofnuðu hann og konan hans Sigrún Bender heildsöluna Bpro. Þau eiga saman þrjú börn, Sigrún er viðskiptafræðingur og fjármálastjóri Bpro og flugstjóri hjá Icelandair svo það er nóg að gera á heimilinu. Verkaskipting sem virkar heima Í þættinum fjallar Baldur meðal annars um skipulag hjónanna. Þar er tekið tilliti til álagstíma þeirra beggja utan heimilisins og þau skipta álagi heimilisþáttanna á milli sín. „Í byrjun hvers mánaðar er skipulagslistinn settur upp í kerfið og miðast þá við flugvaktir Sigrúnar og svo er annað skipulagt utan um það. Síðan er mánuðurinn endurskoðaður í hverri viku og hvernig gengur í lok hverrar viku.“ Stýrðu metró væðingunni Þeir félagar ræða einnig hárgreiðslu- og snyrtivöru bransann. Baldur er mikill markaðsmaður og útskýrir hvernig samstarfsfólk hans markaðssettu fyrst hugtakið Metró maður af krafti hérna á Íslandi. „Metró menn voru ungir karlmenn um aldamótin sem leyfðu sér að hugsa meira um útlitið heldur en áður þekktist hjá karlmönnum. Þeir fóru ekki bara í ljós og strípur og versluðu flott föt heldur fóru þeir að prófa sig áfram með ýmsar snyrtivörur og fleiri en eina tegund af geli.“ Áskoranir miðaldra metró manna Núna eru metró mennirnir flestir orðnir miðaldra og því fylgja nýjar áskoranir. Hrukkur, há kollvik og skallar. Það síðastnefnda er áratuga ef ekki ár hundruða gömul áskorun karlmanna. Í þættinum fer Baldur ýmsar nýjar tækninýjungar og meðferðir í þeim efnum en víða erlendis er verið að þróa og keyra aðferðir sem hafa reynst mjög vel. „Þær aðgerðir eru mikil inngrip en þar eru hár úr virkum svæðum höfuðsins færð handvirkt á svæði þar sem hár er farið að þynnast.“ Baldur lýsir þessum aðgerðum og öðrum sem eru minni inngrip og kosti þeirra og galla. Þáttinn í heild sinni má hlusta á hér fyrir neðan.
Hár og förðun Tengdar fréttir Burstarnir lentu og jörðin byrjaði að skjálfa Nýi HH Simonsen Wonder Brush hárburstinn, sem er hannaður af íslensku heildsölunni bpro í samstarfi við HH Simonsen, hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi undanfarna daga. 21. júlí 2023 11:32 „Hann er góður pabbi og bara bestur í heimi“ Sigrún Bender flugstjóri og fyrrum fegurðardrottning svarar spurningum Makamála um ástina. Hún hefur starfað sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair undanfarin níu ár en í kjölfar heimfaraldurs var henni sagt upp ásamt flest öllum flugmönnum í fyrirtækinu. Sigrún segir þó bjarta tíma vera framundan. 15. febrúar 2021 20:00 Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira
Burstarnir lentu og jörðin byrjaði að skjálfa Nýi HH Simonsen Wonder Brush hárburstinn, sem er hannaður af íslensku heildsölunni bpro í samstarfi við HH Simonsen, hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi undanfarna daga. 21. júlí 2023 11:32
„Hann er góður pabbi og bara bestur í heimi“ Sigrún Bender flugstjóri og fyrrum fegurðardrottning svarar spurningum Makamála um ástina. Hún hefur starfað sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair undanfarin níu ár en í kjölfar heimfaraldurs var henni sagt upp ásamt flest öllum flugmönnum í fyrirtækinu. Sigrún segir þó bjarta tíma vera framundan. 15. febrúar 2021 20:00