Lögregluembættið í Will-sýslu í Plainfield í Illinois greindi frá því í fréttatilkynningu í gær að lögreglunni hefði borist neyðarkall frá 32 ára gamalli konu sem sagði að leigusali sinn hefði ráðist á hana með hníf.
Á vettvangi komu lögreglumenn að hinum 71 árs gamla Joseph M. Czuba, eiganda húsnæðisins, þar sem hann sat á jörðinni fyrir framan innkeyrsluna. Inni í húsinu voru fórnarlömbin tvö, 32 ára gömul kona og sex ára drengur, sem voru bæði með tugi stungusára um allan líkamann, á höndum, fótum og á búknum.
Drengurinn, Wadea Al-Fayoume, var fluttur á spítala þar sem hann lést af sárum og liggur móðir hans þungt haldin á sjúkrahúsi. Þó er talið að hún muni lifa árásina af.
Réðist á þau af því þau voru múslimar
Samkvæmt lögreglu greindi Joseph Czuba ekki frá því hvers vegna hann hefði ráðist á mæðginin. Lögreglumaenn hafi þrátt fyrir það safnað nægilegum upplýsingum með gagnasöfnun og viðtölum til að ákæra Czuba í nokkrum ákæruliðum, þar á meðal fyrir morð og hatursglæpi.
„Lögreglumenn á vettvangi komust að þeirri niðurstöðu að hinn grunaði hefði ráðist á bæði fórnarlömbin vegna þess að þau voru múslimar og vegna yfirstandandi átaka milli Hamas og Ísraela í Mið-Austurlöndum,“ sagði í tilkynningu frá embættinu.
CAIR (Council on American-Islamic Relations), stærstu mannréttindasamtök múslima í Bandaríkjunum, gáfu frá sér yfirlýsingu þar sem sögðust málið sína „verstu martröð“. Þar hefði maður tjáð and-íslömsk og and-palestínsk viðhorf sín með því að brjótast inn í íbúð múslimafjölskyldu til að ráðast á þau með hníf.