„Sátan er alvöru þungarokkshátíð og við munum halda okkur við þungarokk og það helsta í nágrenninu við það,“ segir Gísli Sigmundsson, framkvæmdastjóri Sátunnar. „En þungarokk getur verið mjög fjölbreytt og við leggjum upp úr því að vera með breitt úrval innan þess ramma sem við höfum sett okkur. Áherslan verður alltaf á íslenskar hljómsveitir enda er gríðarleg gróska og hár standard í íslensku þungarokki."
Meðal sveita sem hafa staðfest komu sína eru HAM, I Adapt, Misþyrming, Auðn og Une Misere. „En við ætlum líka að vera með nokkrar erlendar hljómsveitir og erum enn að vinna í því að landa þeim.“

Gísli og Nansý kona hans hafa mikinn áhuga á þungarokkshátíðum, bæði sem skipuleggjendur og gestir. „Við höfum bæði komið að skipulagningu Eistnaflugs og Reykjavík Metalfest hér heima og erum reglulegir gestir á erlendum hátíðum eins og Hellfest, Copenhell og Brutal Assault.“

Hugmyndin að Sátunni fæddist í heimsókn hjá Lilju, yngri dóttur hjónanna, sem býr einmitt í Stykkishólmi. „Við vorum að ræða þungarokkshátíðir þegar Lilja spyr: Getum við ekki bara haldið þungarokkshátíð í Stykkishólmi? Auðvitað fór allt af stað við þessa spurningu og við sóttum blað og penna og hripuðum niður næstu skref. Næsta mánudag var Lilja gengin á málið og við hringdum í framhaldinu í nokkra vini sem voru alveg til í þetta og þannig rúllaði boltinn af stað.“

Á bak við Sátuna stendur hópur reynslubolta sem hefur komið að skipulagi nokkurra tónlistarhátíða hérlendis og spila í þungarokkssveitum. „Það eru miklir meistarar með okkur í liði enda dugar ekkert annað en að vinna með ákveðnum og mjög traustum einstaklingum í svona stóru verkefni.“

Fyrir utan hjónin og dóttur þeirra Lilju inniheldur hópurinn Guðjón úr Sororicide, Unnar úr Beneath og Reykjavík Metalfest, Steingrím frá Eistnaflugi og Reykjavík Metalfest, Silla úr Dimmu og Valla Dordingul ásamt fleirum sem hafa komið að þessu á einn eða annan hátt. „Í raun er þetta fjölbreyttur hópur af þungarokkurum sem hafa verið í hljómsveita- og/eða tónleikabrölti hér heima og erlendis í meira en 30 ár í sumum tilfellum.“

Nýlega var tilkynnt um nýja samstarfsaðila Sátunnar en það eru útvarpsstöðin X977 og Thule. „Fyrir okkur er gríðarlega mikilvægt að fá þennan stuðning frá sterkum vörumerkjum með svona frábært fólk á bak við sig sem hefur trú á því sem við erum að gera. Þetta mun gera hátíðina sýnilegri og hjálpa okkur að tryggja hana í sessi um ókomin ár. Við stefnum á að gera helling af skemmtilegum hlutum með þessum frábæru samstarfsaðilum okkar.“

Miðasala á Sátuna hefst í dag, mánudaginn 2. október í gegnum Glaze sem er annar samstarfsaðili hátíðarinnar. „Það verður bæði hægt að finna miðasöluna í gegnum heimasíðuna okkar og einnig með því að lesa QR kóða á hátíðarplaggatinu okkar. Svo má benda gestum á að fjölmargir skemmtilegir gistimöguleikar eru í boði í Stykkishólmi og nágrenni auk þess sem það er stórglæsilegt tjaldsvæði í bænum.“
Nánari upplýsingar á www.satan-festival.com.