Kona látin eftir sprengingu í Uppsölum Atli Ísleifsson skrifar 28. september 2023 07:46 Septembermánuður 2023 er orðinn sá mannskæðasti í átökum glæpagengja í Svíþjóð í fjögur ár. EPA Tuttugu og fimm ára kona er látin eftir að sprengja sprakk í íbúahverfi í Fullerö, norður af Uppsölum í Svíþjóð, í nótt. Talið er að árásin tengist átökum glæpahópa í landinu, en samkvæmt heimildum SVT á konan ekki að hafa tengst hópunum og ekki verið skotmark árásarinnar.
Tilkynnt var um árásina klukkan 3:45 í nótt að staðartíma. Talsmaður lögreglu segir fimm hús að hafa skemmst í sprengingunni og þar af tvö mjög mikið. Fram kemur að einstaklingur í einu húsanna sé með tengsl við Foxtrot-glæpahópinn, en í janúar síðastliðinn var skotið á sama hús. Sökum þessa segir lögregla að rannsókn standi nú yfir hvort árásin tengist átökum glæpahópa. Sprengjusveit á vegum embættis ríkislögreglustjóra var send á staðinn til að rannsaka vettvanginn, en lögregla girti af stórt svæði í kringum húsin í nótt. Árásir glæpahópa hafa verið sérstaklega tíðar Svíþjóð síðustu mánuði og segir í frétt SVT að septembermánuður sé sá mannskæðasti í fjögur ár. Þannig eru ellefu dauðsföll í september rakin til átakanna, þar af þrjú síðustu tólf tímana. Í gærkvöldi bárust þannig fréttir af skotárás á íþróttavellinum Mälarhöjden, suður af Stokkhólmi, þar sem átján ára piltur var skotinn til bana. Skömmu síðar bárust fréttir af skotárás í Jordbro suður af Stokkhólmi þar sem annar maður var skotinn til bana. Í nótt bárust svo fréttir af sprengingunni í Fullerö.
Svíþjóð Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira