Skoðun

Er allt í gulu?

Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar

Ef svarið sem þú færð er „nei, veistu það er ekki allt í gulu... ég bara hef enga löngun til að lifa og mig langar hreinlega að kveðja þennan heim“, hvernig ætlar þú þá að bregðast við? Hver eru þín næstu skref sem vinur, systir, faðir eða samstarfsfélagi?

September er gulur mánuður og 10. september var dagur geðheilbrigðis og sjálfsvígsforvarna. September er líka mánuður skyndihjálpar og annar laugardagur í september er Alþjóðadagur skyndihjálpar. Á þeim degi er lögð áhersla á að öllum sem vilja gefist tækifæri til að kynna sér skyndihjálp.

Í ár viljum við hjá 1717 og skyndihjálparteymi Rauða krossins sameinast um að kynna geðrækt og sjálfsvígsforvarnir ásamt því að gefa öllum sem vilja tækifæri til að kynna sér hvernig það getur brugðist við þegar það er ekki „allt í gulu“.

Öll getum við aðstoðað

Öll getum við sýnt umhyggju og stuðning í formi sálrænnar fyrstu hjálpar, sem er leið til að bregðast við og veita aðstoð þegar einstaklingur sem stendur þér nálægt upplifir sjálfsvígshugsanir.

Þjálfun í sálrænni fyrstu hjálp veitir þér sjálfsöryggið til að takast á við þær erfiðu aðstæður sem þú stendur frammi fyrir og stuðlar að því að þú getir unnið úr þinni upplifun og reynslu af aðstæðunum.

HORFA – HLUSTA – TENGJA vísar til aðferða sem veita þér öryggi í að bregðast við með því að:

  • HORFA eftir upplýsingum og tilfinningalegum viðbrögðum sem gefa vísbendingar um að einstaklingurinn sé með sjálfsvígshugsanir eða kominn að því að fremja sjálfsvíg. Þetta hjálpar einnig við að tryggja öryggi þitt og einstaklingsins og bregðast við áríðandi grunnþörfum.
  • Vera til staðar og veita athygli, HLUSTA og róa einstaklinginn ef hann er í uppnámi og samþykkja tilfinningar hans og upplifanir.
  • Gefa upplýsingar og TENGJA einstaklinginn við faglegan stuðning til þess að takast á við sjálfsvígshugsanirnar sem viðkomandi upplifir.

Rauði krossinn hefur í áraraðir boðið upp á námskeið í skyndihjálp og sálrænni fyrstu hjálp fyrir einstaklinga og fyrirtæki þar sem þátttakendur tileinka sér HORFA - HLUSTA – TENGJA aðferðina. Námskeiðin stuðla að sjálfseflingu þátttakenda og veita þeim sjálfsöryggi til að takast á við óvæntar og erfiðar aðstæður.

Látum okkur náungann varða, bregðumst við þegar það er ekki allt í gulu og veitum sálræna fyrstu hjálp. Munum líka eftir Hjálparsíma og netspjalli Rauða krossins 1717 og 1717.is, en þar er opið allan sólarhringinn, það er ókeypis að hafa samband og fullum trúnaði er heitið.

Höfundur er sérfræðingur í skyndihjálp hjá Rauða krossinum á Íslandi.




Skoðun

Sjá meira


×