Óðinn Þór markahæstur í grátlegu jafntefli Smári Jökull Jónsson skrifar 6. september 2023 18:51 Óðinn Þór var magnaður í kvöld. Kadetten Óðinn Þór Ríkharðsson lék á als oddi þegar lið hans Kadetten Schaffhausen gerði jafntefli í svissnesku úrvalsdeildinni í handknattleik nú í kvöld.
Óðinn Þór átti frábært síðasta tímabil með Kadetten Schaffhausen en Aðalsteinn Eyjólfsson var þá þjálfari liðsins. Aðalsteinn tók hins vegar við Minden í Þýskalandi í sumar eftir að hafa stýrt liðinu til svissneska meistaratitilsins. Í kvöld mætti Kadetten Schaffhausen liði Amicitica Zurich í fyrstu umferð deildakeppninnar. Kadetten Schaffhausen var með yfirhöndina lengst af. Liðið komst í 5-1 í upphafi leiks en staðan í hálfleik var 10-10. Í síðari hálfleik náði liðið síðan mest fimm marka forystu og leiddi 23-18 þegar tíu mínútur voru eftir. Þá fór hins vegar allt í skrúfuna. Liðsmenn Zurich minnkuðu muninn jafnt og þétt og jöfnuðu metin í 25-25 þegar tæpar tvær mínútur voru eftir. Óðinn Þór kom heimamönnum yfir á ný úr vítakasti en gestirnir jöfnuðu aftur þegar tæp mínúta var eftir og heimamönnum tókst ekki að nýta tímann sem var eftir til að tryggja sér sigurinn. Svekkjandi 26-26 jafntefli því staðreynd hjá Kadetten Schaffhausen en Óðinn Þór var markahæsti leikmaður liðsins. Óðinn Þór skoraði átta mörk úr níu skotum og heldur því áfram á sömu braut eftir frábært tímabil á síðustu leiktíð.
Handbolti Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Collin Pryor í Álftanes Körfubolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Sjá meira