Að minnka kolefnisspor íslensks atvinnulífs Sara Pálsdóttir skrifar 5. september 2023 14:01 Sumarið er frábær tími og í uppáhaldi hjá mörgum, en upp á síðkastið hafa sumrin vakið blendnar tilfinningar. Á þessu ári, líkt og undanfarin ár, hafa borist fréttir af uggvekjandi veðuröfgum. Sögulegur fjöldi hitameta var sleginn víða um heim, við heyrðum fregnir af miklum þurrkum, mannskæðum skógareldum, ofsarigningum, flóðum og risahagléli – oft á stöðum sem Íslendingar heimsækja í sínum sumarfríum. Allt fer þetta ískyggilega saman við svartar spár sem heyrst hafa í áratugi um að gríðarleg kolefnislosun mannkynsins muni, ef ekkert er að gert, hafa ófyrirsjáanleg áhrif á veður, gróðurfar og dýralíf um allan heim. Raunverulegar aðgerðir í brennidepli á sjálfbærnidegi Landsbankans Skýrt dæmi um alvarleika stöðunnar er að stærsta málið sem samstaða náðist um á COP27 loftslagsráðstefnunni í lok síðasta árs snerist um að tryggja fjármagn fyrir viðkvæm ríki sem hafa þegar orðið fyrir og munu verða fyrir frekari áföllum vegna loftslagsbreytinganna. Sjálfbærnidagur Landsbankans verður haldinn í annað sinn föstudaginn 7. september. Yfirskriftin í ár er „Sjálfbærni í verki. Minnkum kolefnisspor íslensks atvinnulífs“. Á fundinum er ætlunin að fræðast um og ræða hvernig stór íslensk fyrirtæki í flugi, samgöngum og byggingariðnaði nálgast losunarverkefnið og markmið sín nú og á komandi árum. Mikilvægt að kortleggja kolefnissporið Önnur lykilniðurstaða COP27 var stóraukin áhersla á ábyrgð stofnana, fyrirtækja og heilu geiranna í viðskiptum og iðnaði. Krafan á fyrirtæki að geti gert grein fyrir kolefnisspori sínu er að stóraukast enda kortleggja þau spor sín í síauknum mæli. Til að vinna að sjálfbærni þar sem hún skiptir mestu máli og hefur mest áhrif þarf fyrirtæki að greina starfsemi sína rækilega og legga mat á helstu áhrif á sjálfbærniþætti. Þetta er að sjálfsögðu mismunandi eftir fyrirtækjum, en öll fyrirtæki eiga sameiginlegt að þurfa að gera mikilvægisgreiningu á áhrifum sínum, greina alla aðfangakeðjuna, skoða áhrif á sjálfbærniþætti og mæla óbeina og beina losun gróðurhúsalofttegunda. Rökrétt skref að styðja viðskiptavini á sjálfbærnivegferðinni Landsbankinn hefur framkvæmt reglulegar mikilvægisgreiningar á áhrifum starfsemi sinnar í rúman áratug og eru þær niðurstöður í takt við niðurstöður annarra fjármálafyrirtækja í heiminum. Helstu áhrif banka liggja í lána- og eignasöfnum, enda er það eðli starfseminnar að fjármagna verkefni sem hafa svo að sjálfsögðu mismunandi áhrif á sjálfbærniþætti. Landsbankinn mælir umfang óbeinnar losunar frá lánasafni sínu með aðferðarfræði PCAF (e. Partnership for Carbon Accounting Financials). Þegar umfangið er vitað er næsta skref að reyna að draga úr því. Við vinnum nú í að fá samþykkt vísindalegt markið um samdrátt í óbeinni losun á þessu ári sem uppfyllir kröfur samtakanna Science Based Targets initiative. En hvað þýðir þetta í raun? Þetta þýðir að okkar helstu áhrif á sjálfbærni til góðs eða ills liggja í verkefnunum sem við fjármögnum – eða kjósum að fjármagna ekki. Til þess að hafa jákvæð áhrif þurfum við að treysta á að viðskiptavinir okkar minnki sín umhverfisáhrif. Það er því eðlilegt skref fyrir bankann að styðja viðskiptavini á þeirra eigin sjálfbærnivegferðinni. Hluti af því er m.a. að veita sjálfbærnimerki Landsbankans um sjálfbæra fjármögnun þeim sem standast kröfur sjálfbærrar fjármálaumgjarðar bankans. Annað er svo að taka virkan þátt í samtalinu og leitast við að varpa ljósi á hvað viðskiptavinir og aðrir eru að gera á árlegum sjálfbærnidegi Landsbankans. Sjálfbærni er verkefni okkar allra um ókomna tíð Þótt loftslagsvandinn sé stærsta viðfangsefni samtímans á heimsvísu þá nær sjálfbærni auðvitað til miklu fleiri þátta. Sjálfbærni er einfaldlega góðir viðskiptahættir og ætti að vera reglan. Sjálfbærni felur í sér að við komum í veg fyrir sóun, tryggjum jafnvægi í nýtingu auðlinda og gætum að umgengni okkar við umhverfið og hvert annað. Markmið um líffræðilegan fjölbreytileika sem sett voru á COP27-loftslagsráðstefnunni verða mikilvæg viðfangsefni á næstu árum. Markmiðið um að halda hlýnun jarðar innan við 1,5°C að meðaltali frá upphafi iðnbyltingar er metnaðarfullt og flókið. Það er alveg ljóst að það er engin töfralausn á vandanum, en almennur samhljómur er um að tími markmiðasetninga langt fram í tímann sé að renna sitt skeið og áþreifanlegur samdráttur í losun sé krafan. Landsbankinn mun halda áfram að taka þátt í samtalinu og verkefninu enda byggir velgengni bankans líkt og samfélagsins alls á sameiginlegri velgengni okkar allra. Ég vona að sem flest ykkar sjái sér fært að fylgjast með sjálfbærnideginum fimmtudaginn 7. september, í Grósku eða í beinu streymi. Nánari upplýsingar um dagskrána og skráningu er að finna á landsbankinn.is. Höfundur er framkvæmdastjóri Samfélagssviðs hjá Landsbankanum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Landsbankinn Loftslagsmál Mest lesið Orkunýlendan Ísland? Bjarni Jónsson Skoðun Látum þá hlæja því þeir tapa hvort sem er Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Ríkisstjórnin seilist í sjóði erfiðisvinnufólks Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Fjárfesting í háskólum Magnús Karl Magnússon Skoðun Þar sem náttúran tapar Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Gætum við verið betri hvert við annað? Jakob Frímann Magnússon Skoðun Skortur á serótónín Gunnar Dan Wiium Skoðun Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa Skoðun Ég vil ekki þennan veruleika Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gætum við verið betri hvert við annað? Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Ríkisstjórnin seilist í sjóði erfiðisvinnufólks Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þar sem náttúran tapar Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Fjárfesting í háskólum Magnús Karl Magnússon skrifar Skoðun Orkunýlendan Ísland? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ekki þennan veruleika Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Grímulaus grænþvottur Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Skortur á serótónín Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Þegar sorgin bankar upp á Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Látum þá hlæja því þeir tapa hvort sem er Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Alzheimer - mennska og mildi Ragnheiður Ríkharðsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsa bætt um 64 milljarða Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er krónan að valda átökum á milli kynslóða? Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Bóf-ar(ion)? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þetta er ekki allt að koma með fjárlagafrumvarpinu Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Ómarktæk skoðanakönnun Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Áherslur ráðherra skipta máli Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Snúum hjólunum áfram Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Búðu til pláss – fyrir öll börn Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Kenningar úr gildi svo að kirkjan þarf að komast á annað stig Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Dansaðu vindur Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason skrifar Sjá meira
Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun
Skoðun Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason skrifar
Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar
Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun