Hafa selt þrjú hundruð þúsund miða Pabbinn finnur afann 5. september 2023 10:06 Þeir Bjarni Haukur Þórsson og SIgurður Sigurjónsson fara á kostum í hlutverkum tveggja manna á ólíkum stað í lífinu sem taka tal saman þegar þeir þurfa að hanga klukkutímum saman á flugvelli. „Það má segja að þetta séu ýktar útgáfur af okkur sjálfum. Við erum góðir vinir og höfum unnið mjög mikið saman,“ segir Bjarni Haukur Þórsson, leikari og höfundur gamanleiksins Pabbinn finnur afann þar sem hann og Sigurður Sigurjónsson fara á kostum.
Verkið segir frá tveimur mönnum sem lenda í seinkun á flugi á Keflavíkurflugvelli. Þeir eru á ólíkum stað í lífinu og á þeim klukkutímum sem þeir þurfa að hanga á vellinum taka þeir tal saman og spegla sig hvor í öðrum. Hjónabandserfiðleikar, flughræðsla, áskoranir í barnauppeldi, endalausar tækninýjungar og hinn óumflýjanlegi eftirlaunaaldur eru meðal þess sem þeir taka fyrir. „Það bætist alltaf eitthvað við í hverri sýningu og engin sýning er eins.“ „Við erum að fjalla um þessi verkefni í daglegu lífi sem við erum öll að fást við, álagið, fjölskyldan, vinnan, hjónabandið og krakkarnir, heilsan og það að eldast. Fólk á að geta séð sig sjálft í verkinu og viðtökurnar hafa verið hreint frábærar. Þetta er í tíunda sinn sem við Siggi vinnum saman en samt í fyrsta sinn sem við leikum tveir saman á sviðinu. Fram að þessu höfum við sett upp einleiki þar sem ég leikstýri honum eða hann mér og má segja að við höfum verið brautryðjendur í því á Íslandi,“ segir Bjarni en meðal sýninga sem þeir félagar hafa unnið að eru Hellisbúinn sem gekk frá árinu 1998 til 2001, Haukurinn, Pabbinn, Afinn og Maður sem heitir Ove svo aðeins nokkrar séu nefndar. „Ég held að varlega áætlað hafi sýningar okkar selt um 300.000 miða í heildina. Nokkrar af þessum sýningum hafa verið sýndar í sjónvarpinu og þá kom Hellisbúinn út á VHS á sínum tíma og var hægt að kaupa hann með pylsupökkum. Við höfum einnig gert bíómynd,“ segir Bjarni. Samvinna þeirra tveggja gangi einstaklega vel. Bjarni og Sigurður hafa sett upp tíu leikverk saman og þekkja hvorn annan út og inn. „Ég hlakka alltaf til að vinna með Sigga, það er gaman að vera saman í þessu. Leikhús er samvinna og oft breytast hlutirnir í æfingaferlinu og aðlagast. Svo snýst þetta ekki síst um frásagnarstílinn, hjá okkur er þetta afslappað sambland af söguleikhúsi og uppistandi, við tölum við áhorfendur og leikum fram og til baka. Það bætist alltaf eitthvað við í hverri sýningu og engin sýning er eins. Við förum með fólk í ferðalag. Sýningar hefjast nú aftur í Hörpu þann 16. september eftir sumarfrí. Þá munu þeir félagar einnig ferðast með sýninguna um landið og verða í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 7. október, í Valaskjálf á Egilsstöðum 31. október, Höllinni í Vestmannaeyjum 28. október og í Hofi á Akureyri þann 11. nóvember. Hér má nálgast miða á sýninguna.
Leikhús Menning Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Fleiri fréttir Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Sjá meira