Það lið sem hefur betur í rimmunni tryggir sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og því er mikið undir.
Danska liðið tók forystuna strax á níundu mínútu þegar Bogdan Racovitan varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Mohamed Elyounoussi.
Heimamenn í Rakow héldu svo að þeir hefðu jafnað metin þegar Giannis Papanikolaou kom boltanum í netið á 39. mínútu, en markið hins vegar dæmt af vegna rangstöðu eftir skoðun myndbandsdómara.
Orri kom svo inn af varamannabekknum á 64. mínútu leiksins, en fleiri urðu mörkin ekki og niðurstaðan því mikilvægur 0-1 útisigur FCK. Kaupmannahafnarliðið fer því með forystu í seinni leik liðanna sem fram fer í Danmörku á miðvikudaginn eftir rúma viku.