Greint er frá málavendingunum á vef Reuters sem hefur undir höndunum átta síðna greinargerð sem lögfræðingar Massa hafa sent á Stefano Domenicali, framkvæmdastjóra Formúlu 1 og Mohammed Ben Sulayem, forseta FIA þar sem að greint er frá afstöðu Massa í málinu en kvaðir eru á um að gefa út slíkt bréf áður en málið verður tekið fyrir í dómssal.
Lögfræðingar Massa segja hann hafa verið fórnarlamb samsæris sem hátt settir fyrrum stjórnendur innan Formúlu 1 og FIA tóku þátt í.
Ökuþórinn hafi, auk heimsmeistaratitilsins árið 2008, orðið af um það bil tíu milljónum evra sökum vísvitandi áreksturs ökumanns í Singapúr kappakstrinum það árið.

„Crashgate“ skandallinn
Atburðarásin árið 2008 í Singapúr kappakstrinum er orðin vel þekkt undir nafninu Crashgate skandallinn.
Massa, sem á umræddu tímabili ók fyrir hið goðsagnakennda lið Ferrari, hafði ræst á rásspól og leiddi kappaksturinn á fjórtánda hring þegar að Nelson Piquet, ökumaður Renault ók utan í vegg með þeim afleiðingum að öryggisbíll var kallaður út.
Það hagnaðist liðsfélaga Piquet hjá Renault, Spánverjanum Fernando Alonso sem með þessu náði í skottið á Massa og vann að lokum Singapúr kappaksturinn.
Ári eftir Singapúr kappaksturinn steig Piquet fram og sagði liðsstjóra Renault hafa sagt sér að aka bíl sínum utan í vegg og seinna meir voru stjórnendur liðsins settir í bann frá mótaröðinni.

Tímabilið 2008 endaði Massa í öðru sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna í Formúlu 1, einu stigi á eftir Lewis Hamilton, þá ökumanni McLaren sem stóð uppi sem heimsmeistari.
„Massa er réttmætur heimsmeistari ökumanna tímabilið 2008. Formúla 1 og FIA hunsuðu vísvitandi það svindl sem átti sér stað, svindl sem sá til þess að heimsmeistaratitlinum var rænt af honum,“ segir lögfræðingur Massa hjá Enyo Law lögfræðistofunni.

Bernie Ecclestone var árið 2008 helsti stjórnandi Formúlu 1 og haft var eftir honum í mars fyrr á þessu ári að bæði hann sem og Max Mosley, þá forseti FIA, hafi vitað að Piquet hefði verið fyrirskipað að aka utan í vegg í Singapúr kappakstrinum en að þeir hafi ekkert aðhafst í málinu.
Max Mosley, fyrrum forseti FIA lést árið 2021 og Charlie Whiting, sem var einnig einn af efstu stjórnendum í kringum mótaröðina á þessum tíma, lést árið 2019.

Vill réttlæti
Massa hefur áður tjáð sig um þessa atburðarás í samtali við Reuters fyrr á árinu og þar segist hann vilja réttlæti.
„Ef að hæst settu stjórnendur Formúlu 1 og FIA vissu af því hvað væri að eiga sér stað þarna árið 2008 en aðhöfðust ekkert í málinu, er það sanngjarnt?“
Í bréfi lögfræðinganna til Domenicali og Sulayem segir að ef ekki berist ásættanlegt svar frá þeim muni Massa leita réttar síns fyrir dómstólum og fara fram á skaðabætur.
Þá vill hann staðfestingu frá þessum mönnum að ef ekki hefði komið til þessa atburðarásar í Singapúr árið 2008, hefði hann orðið Formúlu 1 heimsmeistari.