Þetta tilkynnti Meta, móðurfélag Facebook og Instagram, í gær en fyrirtækið hefur nýverið prófað að takmarkað þann fjölda frétta sem birtast hjá hluta notenda í Kanada.
Aðgerðin er svar Meta við nýrri kanadískri löggjöf sem neyðir tæknirisa til að ganga til samninga við þarlend fjölmiðlafyrirtæki og greiða fyrir fréttaefni sem er deilt eða endurnýtt á miðlum þeirra. Með þessari ákvörðun hyggst Facebook komast alfarið hjá því að greiða fjölmiðlum fyrir efni sitt.
Löggjöfin tók gildi fyrr í sumar og er ætlað að styrkja fjárhagslega stöðu fjölmiðla sem hafa margir hverjir misst auglýsingatekjur yfir til samfélagsmiðla á borð við Facebook og Instagram. Telur talsfólk frumvarpsins eðlilegt að Meta deili hluta auglýsingatekna sinna þar sem fréttaefni sé notað á miðlum fyrirtækisins til að draga að notendur og selja þannig fleiri auglýsingar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Facebook lokar fyrir dreifingu frétta á miðlinum en fyrirtækið greip til svipaðrar aðgerðar í Ástralíu árið 2021 eftir að ný lög gerðu tæknirisum að greiða fyrir fréttaefni. Eftir viðræður og breytingar á löggjöfinni náðist samkomulag milli Facebook og ástralskra stjórnvalda sem leiddi til þess að aftur var opnað fyrir fréttadeilingar.
Facebook bæti hag fjölmiðla
Talskona Meta í Kanada segir fyrirtækið lengi hafa gert athugasemdir við lagafrumvarpið.
„Lagasetningin grundvallast á þeirri ósönnu forsendu að Meta hagnist með ósanngjörnum hætti á fréttaefni sem deilt er á okkar miðlum, þegar raunin er einmitt hið gagnstæða.“
Fréttamiðlar velji að deila efni sínu á Facebook og Instagram til þess að stækka lesendahóp sinn og auka tekjur sínar.
„Á sama tíma vitum við að fólk sem notar miðla okkar kemur ekki þangað til að nálgast fréttir,“ hefur kanadíski miðilinn CTV eftir Rachel Curran.
Hátt í tuttugu þúsund blaðamenn misst vinnuna
Kanadísk stjórnvöld segja löggjöfina jafna leikinn milli risafyrirtækja á borð við Meta sem selji stóran hlut allra auglýsinga á netinu, og fjölmiðlageirans sem hafi þurft að þola mikinn samdrátt.
Að sögn stjórnvalda hafa hátt í 500 fréttamiðlar hætt rekstri í Kanada frá árinu 2008 og yfir 20 þúsund blaðamenn misst lífsviðurværi sitt á sama tíma og milljarða auglýsingatekjur haldi áfram að streyma til Meta og Google. Saman raka fyrirtækin tvö til sín um 80 prósentum af öllum netauglýsingatekjum í Kanada, að því er fram kemur í frétt CTV.
Forseti News Media Canada, samtaka fjölmiðlafyrirtækja, segir ákvörðun Meta koma til með að skaða notendaupplifun á Facebook og draga úr tekjumöguleikum miðilsins.
„Án aðgangs að fréttum sem hafa verið sannreyndar af alvöru blaðamönnum mun Facebook verða síðri kostur fyrir notendur og auglýsendur,“ sagði Paul Deegan í yfirlýsingu. „Við gerum ráð fyrir því að fleiri og fleiri auglýsendur muni hætta að kaupa auglýsingar á miðlinum til að bregðast við þessari einhliða, ólýðræðislegu og óhóflegu aðgerð.“