Landeigendafélag Ísólfsskála stendur fyrir gjaldskyldunni sem framkvæmd er með aðstoð smáforritsins Parka. Rafrænt eftirlit er með bílastæðunum en bæði er hægt að greiða fyrir þau í smáforritinu og á vefsíðu Parka.
Gjaldið fyrir farartæki með eitt til sjö sæti er þúsund krónur. Þegar um er að ræða litla rútu, farartæki með átta til tuttugu sætum, kostar bílastæðið tvö þúsund krónur. Stórar rútur, með tuttugu eða fleiri sæti, borga svo fjögur þúsund krónur. Gjaldið miðast við einn sólarhring í senn.
Fram kemur á skilti á bílastæðinu að gjaldtakan sé til þess að auka öryggi, vernda náttúruna og bæta aðgengi og þjónustu.
