Þyngdu nauðgunardóm yfir Finni Ólafur Björn Sverrisson skrifar 23. júní 2023 16:26 Dómur Landsréttar var kveðinn upp í dag. vísir/vilhelm Landsréttur hefur með dómi sínum í dag þyngt fangelsisdóm yfir Finni Þ. Gunnþórssyni um sex mánuði fyrir að hafa nauðgað konu í nóvember 2019. Héraðsdómur hafði dæmt hann í tveggja og hálfs árs fangelsi og taldi að seinagangur hjá lögreglu við skýrslutökur hafi ekki spillt vörn hans.
Landsréttardómurinn var birtur í dag en í apríl á síðasta ári féll Héraðsdómur Reykjaness. Fram kom við rekstur málsins þá að Finnur hafi ekki verið yfirheyrður fyrr en sjö mánuðum eftir atvikið og hálfu ári eftir að kæra var lögð fram hjá lögreglu. Það var samt sem áður ekki talið spilla vörnum hans og hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Ríkissaksóknari áfrýjaði dómnum til Landsréttar og krafðist þyngingar refsingar. Finnur var ákærður fyrir að hafa nauðgað konunni, hrint henni á rúm og haldið henni fastri, haldið fyrir vit hennar svo hún ætti erfitt með andardrátt og slegið, bitið og klipið hana mörgum sinnum um allan líkamann. Auk þess fyrir að hafa stungið nokkrum fingrum inn í leggöng hennar án samþykkis. Samkvæmt læknisvottorði hlaut hún eymsli víðsvegar um líkama. Í héraði var talið ósannað að Finnur hafi rifið mörgum sinnum í hár brotaþola og troðið hönd sinni mörgum sinnum upp í munn hennar. Kunni ekki skýringar á eymslunum Finnur og konan kynntust á skemmtistað og þekktust ekki fyrir. Í dómi héraðsdóms kom fram að vel hafi farið á með þeim á staðnum, þau spjallað saman og ákveðið í framhaldinu að fara saman heim til hans. Fyrir Landsrétti sagði Finnur að fljótlega eftir að þau hefðu komið heim til hans hefðu þau hvort um sig afklæðst og stundað kynlíf í 30 til 45 mínútur. Að kynlífinu loknu hefðu þau spjallað saman í stutta stund, kannski fimmtán mínútur. Þau hefðu farið að sofa skömmu fyrir klukkan sjö um morguninn og stillt vekjaraklukku þar sem brotaþoli hefði þurft að vera komin heim til sín til að taka á móti börnum sínum fyrir ákveðinn tíma. Kvaðst hann ekki hafa séð neina áverka á brotaþola um morguninn en ekki veitt þeim heldur sérstaka athygli. Kunni hann engar skýringar á þeim áverkum sem lýst var í læknisvottorði. Slegið og klipið um allan líkama Konan hélt því staðfastlega fram að þau hefðu ekki rætt um hörku í kynlífi eða að hann yrði ráðandi í kynlífsathöfnum þeirra. Hún lýsti því að fas hans hefði breyst strax og þau komu heim til hans. Hún hefði orðið sérstaklega vör við það þegar hann sneri henni við í rúminu strax í upphafi kynlífisathafna þeirra. Finnur hafi beitt hana miklu ofbeldi í langan tíma en hún gæti ekki lýst því í ákveðinni tímaröð. Hún myndi þó sérstaklega eftir biti ákærðaaftan á kálfa á vinstri fæti og að hann hefði í raun slegið hana og klipið út um allan líkama. Hún kvaðst hafa farið í meðferð eftir atburðinn að ráði starfsmanns Neyðarmóttöku og það hefði hjálpað henni að takast á við afleiðingarnar. Ekki gefið samþykki fyrir hvers kyns ofbeldi Framburður konunnar var talinn stöðugur og með sama hætti fyrir lögreglu og dómstólum. Ofbeldisfullu athafnirnar sem ofan var lýst sagði hún ekki með samþykki hennar. Í niðurstöðu er litið til læknisfræðilegrar skoðunar hjúkrunarfræðings við komu hennar á Neyðarmóttöku. Þar kemur fram að brotaþoli hafi verið með fjölmarga áverka á höfði, hálsi, brjóstkassa og brjóstum, baki, herðum, mjöðmum, efri útlimum og fótleggjum. Staðfesti læknir að áverkar væru í samræmi við lýsingar fyrir dómi. Talið var að þótt framburður Finns hafi verið stöðugur og nákvæmur hafi hann ekki samræmst tímasetningum og áverkum sem fram komu við meðferð málsins. Var frambuður hans því ekki metinn trúverðugur og framburður hennar lagður til grundvallar. Litið var til þess að þrátt fyrir samþykki hennar fyrir kynlífinu hafi legið fyrir, hafi það ekki tekið til svo mikillar hörku, niðurlægingar og annars ofbeldis. Hann hafi skeytt um raunverulegan vilja hennar og brotið þannig gegn sjálfsákvörðunarrétti og kynfrelsi hennar. Var því talið sannað að Finnur hafi gerst sekur um nauðgun og hann dæmdur í þriggja ára fangelsi. Auk þess var honum gert að greiða brotaþola tvær milljónir í miskabætur.
Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira