Hópurinn, sem kallast House Freedom Caucus, segist ætla að berjast gegn því að samkomulagið verði samþykkt af fulltrúadeildinni.
AP fréttaveitan segir McCarthy hafa gengið á þingmenn og beðið þá um að einbeita sér að þeim árangri sem náðst hafi með samkomulaginu. Hann sagði þó einnig að samkomulagið væri slæmt fyrir Demókrata, en McCarty mun líklega þurfa aðstoð þeirra til að koma samkomulaginu í gengum þingið.
Fulltrúar Biden og McCarthy hafa átt í viðræðum síðustu daga en tíminn er af skornum skammti. Verði þakið ekki hækkað, gæti ríkissjóður Bandaríkjanna lent í greiðsluþroti á næstu dögum og yrði það í fyrsta sinn í sögu ríkisins.
Í mjög einföldu máli snýst deilan um það að skuldaþakið, eða það hvað Bandaríkin mega skulda samkvæmt lögum, er að verða of lágt. Skuldaþakið stendur nú í 31,4 billjónum dala en áætlað er að Bandaríkin reki höfuðið í þakið, ef svo má að orði komast, á næstu dögum.
Sjá einnig: Vongóðir þó það styttist í fyrsta greiðsluþrot Bandaríkjanna
Verði samkomulagið samþykkt er talið að komið verði í veg fyrir mikið rót á hlutabréfamörkuðum um heiminn allan.
Samkomulagið felur meðal annars í sér að útgjöld ríkisins aukist ekki næstu tvö ár auk breytinga á lögum um umhverfisvernd og vinnuskilyrði fyrir þá sem þiggja mataraðstoð í Bandaríkjunum. Margir þingmenn Demókrataflokksins eru verulega ósáttir við tvo síðarnefndu liði samkomulagsins.
Sjá einnig: Náðu samkomulagi til að forða Bandaríkjunum frá greiðsluþroti
Það felur einnig í sér að ekki þyrfti að hækka þakið aftur fyrr en í janúar 2025, eftir næstu forsetakosningar.
Vilja ekki að Demókratar hjálpi McCarthy
Á meðal þeirra þingmanna sem eru á móti samkomulaginu er Matt Gaetz, fulltrúadeildarþingmaður repúblikana frá Flórída, en hann sagði í viðtali í kvöld að fái McCarthy hjálp frá Demókrötum til að koma samkomulaginu í gegnum þingið, farið það gegn samkomulagi sem þingforsetinn gerði við þingmannahópinn þegar hann varð forseti.
Gaetz segir að þá myndu þau líklega lýsa yfir vantrausti á McCarthy.
Fimmtán atkvæðagreiðslur þurfti til að tryggja McCarthy embættið en þá hafði hann átt í miklum viðræðum við áðurnefnda þingmenn. Meðal þess sem hann lofaði þeim var að gefa þeim fleiri sæti í nefndum og breyta reglum þingsins á þann hátt að einungis einn þingmaður þarf að lýsa yfir vantrausti gegn þingforsetanum svo halda þurfi atkvæðagreiðslu.
Sjá einnig: McCarthy borubrattur eftir viðræður við andstæðinga
Gaetz: If a majority of Republicans are against a piece of legislation, and you use Democrats to pass it, that would immediately be a black letter violation of the deal we had with McCarthy, and it would likely trigger an immediate motion to vacate. pic.twitter.com/Kjp2JD52Rv
— Acyn (@Acyn) May 30, 2023
„Þreyttur á hugleysinu“
Hakeem Jeffries, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni, sagði í kvöld að McCarthy þyrfti að tryggja stuðning minnst tveggja af hverjum þremur þingmönnum Repúblikanaflokksins, eigi frumvarpið um samkomulagið að verða samþykkt á þingi. Óljóst er hvort McCarthy hafi tök á því.
Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, hefur lýst yfir stuðningi við frumvarpið. Líklegt þykir að verði samþykkt af öldungadeildarþingmönnum, verði það samþykkt í fulltrúadeildinni.
President Biden and Speaker McCarthy's agreement will protect the economy and eliminate the threat of a catastrophic default.
— Chuck Schumer (@SenSchumer) May 30, 2023
I support this bipartisan agreement. Nobody's getting all they want but it takes default off the table and protects key investments we've made.
Samkvæmt frétt New York Times stendur McCarthy frammi fyrir uppreisn innan flokksins. Meðlimir House Freedom Caucus hafa ekki sparað stóru orðin í kvöld og heita því að berjast gegn frumvarpinu og segja að verði það samþykkt, verði afleiðingarnar miklar.
Dan Bishop, þingmaður frá Norður-Karólínu, sagði til að mynda í kvöld að hann teldi samkomulagið tilefni til að lýsa yfir vantrausti á McCarthy.
„Ég er búinn að fá mig fullsaddan af öllum lygunum. Ég er þreyttur á hugleysinu, heigulshættinum,“ sagði Bishop.
Hann bætti við að enginn nema McCarthy hefði getað staðið sig svo illa við samningaviðræðurnar við Biden. Seinna fóru Bishop og aðrir þingmenn hörðum orðum um McCarthy.
None. Zero," Bishop said when asked if he had confidence in speaker. "What basis is there for confidence?"
— Manu Raju (@mkraju) May 30, 2023
Says McCarthy is lying.
Norman said McCarthy has lost some trust
Roy says McCarthy violating a deal.
We got to re-look at how our leadership structure is in place. pic.twitter.com/j3U2myLx5d
Mögulegt er að greitt verði um frumvarpið í fulltrúadeildinni annað kvöld.
Þegar þetta er birt er verið að ræða frumvarpið í svokallaðri reglunefnd fulltrúadeildarinnar, þar sem nokkir yfirlýstir andstæðingar samkomulagsins sitja. Áhugsamir geta fylgst með fundinum hér á vef C-Span.