Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir að Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hafi nú greint um þriðjung sýna eða 234 sem tekin voru í tengslum við niðurskurð vegna riðuveiki á Bergsstöðum og tæplega helming sýna, 342, frá Syðri-Urriðaá.
Fullvíst að hjörðin var útsett
Að sögn Matvælastofnunar hefur riðusmit verið staðfest í um sex prósent sýna frá Bergstöðum en smitefnið hefur ekki greinst í neinu sýni frá Syðri-Urriðaá enn sem komið er, að undanskildu sýni frá einni á sem flutt hafði verið þangað frá Bergsstöðum haustið 2020.
Hins vegar segir stofnunin að ekki sé hægt að álykta út frá þessu að riða hafi ekki náð að breiðast út í hjörðinni á Syðri-Urriðaá. Fullvíst sé að hjörðin var útsett fyrir smitefninu, því ærin frá Bergsstöðum gekk í hjörðinni í þrjá vetur og óhugsandi annað en að hún hafi mengað umhverfi hjarðarinnar og smitað einhverjar ær með beinum hætti.
Segir stofnunin að niðurstöðurnar sýni fyrst og fremst að á Syðri-Urriðaá hafi fáar kindur, ef einhverjar, verið langt komnar á meðgöngutíma sjúkdómsins. Þróun sjúkdómsins hafi því verið skemmra á veg komin en á Bergsstöðum og mögulega hefur smitefnið ekki verið búið að magnast upp með sama hætti.
Meðgöngutíminn getur verið langur
Ítrekar Matvælastofnun að meðgöngutími sjúkdómsins sé oftast 1,5 til 2 ár, en getur verið mun lengri. Mest allan þann tíma leynist smitefnið í eitlum meltingafæranna og víðar í líkamanum, magnast þar upp og er skilið út með skít, munnvatni og legvatni.
Það er ekki fyrr en stuttu áður en einkenni sjúkdómsins koma fram að mögulegt er að greina smitefnið í miðtaugakerfinu með sýnatöku úr mænukylfu og litla heila. Því er varhugavert að draga of sterkar ályktanir út frá neikvæðum niðurstöðum á meðan jákvæðar niðurstöður eru mjög öruggar.
Þá minnir Matvælastofnun á að það sé á ábyrgð sérhvers sauðfjárbónda að gera allt sem í hans valdi stendur til að verja hjörð sína smiti og ekki síður að koma í veg fyrir að kindur í hans eigu smiti aðrar hjarðir.
Hvetur bændur til að afhenda fé
Engum dylst, að sögn stofnunarinnar, að það sé mikið áfall fyrir sauðfjárbónda þegar riðuveiki greinist í hans hjörð og allir sem að málum koma finna til samkenndar með þeim bændum. Bændurnir á Bergstöðum og Syðri-Urriðaá hafa sýnt mikið hugrekki, axlað ábyrgð og verið samvinnufúsir í yfirstandandi aðgerðum, samkvæmt stofnuninni.
Hún hvetur þá bændur sem keyptu fé frá Syðri-Urriðaá og enn hafa ekki samþykkt að afhenda stofnuninni þær kindur, eins og reglugerð kveður á um, að gera slíkt. Riðuveiki veldur sársaukafullum taugaskaða í miðtaugakerfi sauðfjár og það er skylda okkar að hindra útbreiðslu svo alvarlegs sjúkdóms.