Innlent

Mannanafnanefnd samþykkir Bubba: „Ég er bara Bubbi“

Máni Snær Þorláksson skrifar
Bubbi segir að þetta breyti engu fyrir sig, hann sé alltaf bara Bubbi.
Bubbi segir að þetta breyti engu fyrir sig, hann sé alltaf bara Bubbi. Vísir/Vilhelm

Eiginnafnið Bubbi er á meðal þeirra nafna sem mannanafnanefnd samþykkti á dögunum. Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og um leið þekktasti Bubbi landsins segir þetta þó ekki breyta neinu fyrir sér.

Bubbi Morthens hefur alla tíð verið þekktur sem Bubbi frekar en Ásbjörn eins og hann er skráður í þjóðskrá. „Ég er bara Bubbi,“ segir hann í samtali við blaðamann þegar hann spyr hann hvort hann sjái fyrir sér að breyta nafninu í þjóðskrá, nú þegar það er hægt. 

„Það myndi aldrei breyta neinu fyrir mér. Það er bara fíknó sem myndi kalla mig Ásbjörn eða löggan eða dánarstjórinn eða eitthvað svoleiðis. Ég meina, það er mjög líklegt að Bubbi verði á legsteininum mínum. En gott mál, nú bara sameinast allir Bubbar Íslands“

Einu nafni hafnað

Bubbi var ekki eina nafnið sem nefndin samþykkti. Eiginnöfnin Hóffý, Núra, Jónía, Sasha, Gró, Nóla, Yndís og Talitha voru einnig samþykkt. Þá hafnaði nefndin einu nafni, eiginnafninu Eyr. Var það gert á grundvelli þess að annað skilyrði sem mannanöfn þurfa að uppfylla.

Skilyrðin sem um ræðir má sjá hér fyrir neðan.


1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.


Nefndin segir að skilyrði númer tvö sé einkum ætlað til að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra.

„Nefndin lítur svo á að eiginnafnið Eyr sé breyting á rótgróna nafninu Eir sem stríðir gegn hefð þess og er því ekki hægt að samþykkja það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×