„Við sérhæfum okkur í hlaupum en viljum ná til breiðs hóps,“ segir Þórdís Wathne sem er eigandi verslunarinnar. „Það hefur svo sannarlega tekist enda kemur til okkar fjölbreyttur hópur sem stundar alls konar útivist allt árið um kring og fólk sem er duglegt að fara út að labba.“

Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir hóf að stunda hlaup árið 2008 og er reglulegur viðskiptavinur hjá Hlaupári. „Verslunin Hlaupár er bæði með fallegar og praktískar vörur og mér finnst best þegar þetta fer saman. Þjónustan er líka framúrskarandi og þau leggja sig fram um að bjóða upp á allt sem tengist hlaupunum, bæði götu- og fjallahlaupum og styttri og lengri vegalengdum. Sérstaða þeirra er sú að þau handvelja hverja einustu vöru og því eru þetta vörur sem þau hafa prófað og líkar vel við.“
Mikil vellíðan fylgir hlaupum
Hafdís segist hafa byrjað að hlaupa fyrir algjöra tilviljun og skráði sig fljótlega í hálft maraþon. „Næstu árin var ég algjör sólskinshlaupari en hljóp nokkur maraþon. Árið 2013 hljóp ég fyrst Laugaveginn og 2017 fór ég fyrsta alvöru fjallahlaupið í UTMB seríunni. Ári seinni fór ég mitt fyrsta 100 km fjallahlaup og fékk þá óstöðvandi bakteríu fyrir lengri fjallahlaupum.“

Hún segir vellíðanina sem fylgir því að reyna á sig úti í náttúrunni vera mest gefandi við hlaupin. „Þess vegna finnst mér miklu skemmtilegra að hlaupa úti en inni í dag þó það hafi tekið mig nokkur ár að komast af hlaupabrettinu. Ég elska að hlaupa í sólinni en líka að klæða af mér rok og rigningu. Þetta snýst allt um rétta búnaðinn.“
Hlaupabúnaðurinn hennar Hafdísar:
Hver er uppáhalds jakkinn þinn?
Ég elska Uglow jakkana en þeir eru léttir og algjörlega vatnsheldir. Svo koma þeir í svo fallegum litum líka.

Áttu þér uppáhalds hlaupaskó?
Hoka hentar mér mjög vel og ég verð að segja að Mafate speed er í mestu uppáhaldi.

Áttu þér uppáhalds hlaupabuxurnar?
Uppáhaldshlaupabuxurnar mínar eru frá Uglow. Þær eru fullkomnar, rosalega mjúkar en samt með góðum stuðningi og svo er innbyggða beltið algjör snilld.

Hver er uppáhalds hlaupabolurinn
Ég á nokkra æðislega hlaupaboli frá Uglow sem erfitt er að velja á milli en þessi stuttermabolur er alveg frábær; léttur, fallegur, nuddast hvergi og til í dásamlegum litum.

Hvaða hlaupasokkar eru í mestu uppáhaldi?
Þægilegustu sumarsokkarnir eru frá JOHAUG en þeir eru líka á mjög góðu verði. Bestu vetrarsokkarnir eru klárlega JOHAUG göngu- og hlaupasokkarnir.

Hvert er uppáhalds hlaupavestið?
Gott hlaupavesti er nauðsynlegt. Það þarf að passa vel, vera með nóg af vösum, taka allan skyldubúnað en líka vera þægilegt þegar lítið er í pokanum. Þetta vesti sameinar þetta allt að mínu mati.

Aðrar uppáhalds hlaupavörur Hafdísar eru meðal annars BLACK DIAMOND Carbon Z hlaupa- og göngustafirnir. Þeir eru léttir og meðfærilegir og algjörlega nauðsynlegir í löngum fjallahlaupum.
Góð sólgleraugu eru líka nauðsynleg og eru NEON Arizona W sólgleraugun á óskalistanum hjá Hafdísi. „Einnig er gott höfuðljós nauðsynlegt og oftast hluti af skyldubúnaði. PETZL Swift höfuðljósið er það allra besta á markaðnum í dag.“

Spennandi hlaupasumar fram undan
Það eru mörg spennandi hlaup á dagskrá hjá Hafdísi næstu mánuði. „Ég var svo heppin að komast inn í draumahlaupið mitt sem er haldið á Ítalíu í september. Þar mun ég hlaupa 350 km með 30.000 metra hækkun og hlakka svakalega mikið til. Ég er skráð í fullt af keppnishlaupum í vor og sumar sem ég mun taka sem æfingahlaup, t.d. Transvulcania hlaupið sem fer fram á Kanaríeyjum í maí en þar hleypt ég um 72 km, Mýrdalshlaupið, Hlaupárshringinn, Esjumaraþon, Laugaveg og líklega Súlur Vertical.“

Úrval þekktra merka á boðstólnum
Hlaupár selur einnig úrval vara fyrir hversdagslega notkun og nefnir Þórdís þar sérstaklega Hoka skóna. „Þeir eru jafn mikið teknir sem hlaupaskór og sem göngu- og hversdagsskór. Það er greinilega komið vor því mjög margir leggja leið sína til okkar þessa dagana til að kaupa sumarskóna,“ segir Þórdís.
Meðal helstu vörumerkja sem Hlaupár selur eru Millet, Uglow, Coros, Hoka, Johaug, Fusion, Scarpa, Otso, Rigde merino, Black diamon, Petzl og Lafuma. „Millet er mjög vinsælt sem göngufatnaður og hversdagsfatnaður en við eigum von á nýrri hlaupalínu frá þeim á næstu dögum. Uglow, Johaug og Fusion eru svo vinsælustu hlaupamerkin og svo erum við með mikið úrval af útivistargleraugum sem einnig minnir okkur á að vorið sé komið.“
Sumarvörurnar eru að detta í hús að sögn Þórdísar og þar má finna margar spennandi vörur. „Við höfum fengið mikið af nýjum sólgleraugum, nýjum týpum af Hoka skóm og svo eru sumarvörurnar frá Millet og Uglow að lenda.“
Nánari upplýsingar á hlaupar.is.