Spár gera ráð fyrir heldur leiðinlegu veðri um páskana í ár. Á skírdag verður þó hæglætisveður en hvessa fer á föstudaginn langa og mikil úrkoma verður á sunnan- og vestanverðu landinu, að sögn Björns Sævars Einarssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Hann segir að á föstudaginn langa verði suðaustan fimmtán til tuttugu metrar á sekúndu og mikil rigning. Því verði ekkert ferðaveður á föstudaginn langa og hann mælir með því að fólk nýti skírdag til ferðalaga. Þá segir að hann að ekki muni viðra vel til skíðaiðkunar. Hvorki í Bláfjöllum þar sem verður hvasst og blautt, né á norður- og austurlandi, sem þó sleppa við úrkomuna.
Þá segir hann að stytta muni upp eftir hádegi á laugardag en að önnur skil gangi yfir á páskadag með suðaustanátt og rigningu á suður- og suðausturlandi.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á morgun:
Rigning suðaustantil, þurrt að kalla norðan- og austanlands, annars rigning með köflum eða skúrir. Hægari annað kvöld, kólnar talsvert og allsvíða slyddu- eða snjóél.
Á miðvikudag:
Suðvestan 3-10 sunnantil, skúrir og hiti 1 til 6 stig, en norðlæg átt, 3-8 m/s norðantil og slydda eða snjókoma með köflum. Hiti þar um eða undir frostmarki.
Á fimmtudag (skírdagur):
Hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Dálítil él í flestum landshlutum Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost norðan heiða. Vaxandi suðaustanátt sunnantil um kvöldið.
Á föstudag (föstudagurinn langi):
Suðaustan 13-20 m/s og rigning sunnan- og vestanlands. Talsverð rigning sunnanlands. Hægari og úrkomulítið norðaustantil. Hiti 3 til 9 stig.
Á laugardag:
Sunnanátt, 5-13 með rigningu, en að mestu þurrt fyrir norðan. Hiti 2 til 8 stig.
Á sunnudag (páskadagur):
Útlit fyrir suðaustanátt, 8-15 m/s með rigningu um landið sunnanvert, en lengst af þurrt fyrir norðan. Hiti 4 til 11 stig.