Laginu er spáð afbragðsgóðu gengi í Liverpool í vor en samkvæmt vefsíðunni Eurovisionworld má gera ráð fyrir að Loreen beri sigur úr býtum. Tattoo var kynnt inn sem líklegt til vinsælda á Íslenska listanum í síðustu viku en situr nú í átjánda sæti en má gera ráð fyrir því að lagið hækki sig upp listann í takt við hækkandi sól.
Hér má hlusta á lagið:
Íslendingar í efstu þremur sætunum
Söngvakeppnisstjarna okkar Íslendinga, Diljá Pétursdóttir, situr staðföst í fyrsta sæti listans þriðju vikuna í röð með lagið Power en af efstu tíu lögum vikunnar eru fimm þeirra eftir íslenskt tónlistarfólk. Patrik skipar annað sæti með lagið Prettyboitjokkó en Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór fylgja fast á eftir með lagið Vinn við það.
Idol stjarnan Saga Matthildur situr í áttunda sæti með lagið Leiðina heim og Emmsjé Gauti í því tíunda með lagið Klisja, sem sat um tíma á toppnum.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: