- Vogin er frá 23. september til 23. október.
Þú hefur svo mikinn aga og í svo mörgu, jafnvel flestu. Svo að til þess að ná orku, bjartsýni og hugmyndum sem er verið er að senda þér, þá verðurðu að hafa sterkan huga. Til dæmis það eina sem alkóhól gerir fyrir þig er að það lamar á þér heilann. Ef makar eða þeir sem eru þér nánir eru í þessarri vitleysu getur það haft mikil áhrif. Það kemur sá tími að það þarf bara að segja að maður loki dyrunum á manneskjuna ef að breytingar verði ekki gerðar.
Þú ert jafnvel greindari en flest önnur merki og þessi tími gefur þér svo mikið ef þú getur verið stabíl. Sjöundi, fjórtándi, 23. – 24. mars eru dagar þar sem þú skalt vera vel á verði. Þarna geta stór tækifæri komið til þín og miklir möguleikar til þess að loka því sem þú ekki vilt hafa inni í lífi þínu. Þegar þú vaknar á þessum dögum, og helst á þeim öllum, skaltu þakka fyrir að fá að lifa þennan dag og segja að þú sért spennt fyrir þeim fallegu gjöfum sem dagurinn mun færa þér.
Þér mun ganga vel á prófum, alveg sama hvaða próf eru lögð fyrir þig og þó að þú upplifir þá tilfinningu að þú sért óheppin og að ekkert sé að ganga upp, þá eru það bara nokkrir klukkutímar og í mesta lagi einn sólarhringur. Þú átt eftir að stuðla að bættri meðferð á fólki, hvort sem það er alls konar fólk sem á bágt eða fólk sem er níðst á af einhverjum toga. Þetta betrumbætir þitt líf í leiðinni, gerir það auðugra og aflmeira og lokaorðið er: Ástin er fyrir þig framan þig.
Knús og kossar, Sigga Kling
