Þetta sagði Vilhjálmur í samtali við umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni í morgun. Þar ræddi hann um þá ákvörðun samninganefndar Eflingar að slíta kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins í gær og hefja undirbúning verkfallsaðgerða.
Vilhjálmur segir að hann hafi reiknað út að viðræðuslit Eflingar gæti kostað þrjá milljarð króna, enda séu Samtök atvinnulífsins búin að slá afturvirkni samninganna út af borðinu.
„Þá er einfalt að reikna út miðað við þann félagafjölda sem er hjá Eflingu. Það er í kringum 21 þúsund manns. Og ef þú notar þær launahækkanir sem um var samið þá notaði ég það sem er í okkar samningi, SGS. Og margfalda það síðan upp með þeim félagsmönnum sem eru á kjörskrá hjá Eflingu. Þá eru þetta upp undir þrír milljarðar.“
Mikill ávinningur að láta nýjan samning taka beint við af þeim gamla
Vilhjálmur segir að það hafi verið lenska á íslenskum vinnumarkaði í genum árin – og nánast í hverjum einustu samningum sem hann hafi tekið þátt í síðustu tuttugu ár – að þá hafi liðið tveir til fjórir mánuðir að jafnaði þar sem kjarasamningsgerðin hafi dregist með tilheyrandi tekjutapi.
„Það er mikill ávinningur fólginn í því að ná að gera kjarasamning þar sem sá nýi tekur beint ný af þeim gamla,“ segir Vilhjálmur.
Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum að neðan.
SGS ekki of fljót á sér
Aðspurður um hvort að hann telji að SGS, VR og iðnaðarmenn hafi verið of fljótir á sér að semja, þegar litið er til baráttu Eflingar nú, segir Vilhjálmur að svo sé alls ekki.
„Ég vísa því alfarið á bug. Þessi kjarasamningur okkar var virkilega góður. Hann er að skila fólki allt að 53 þúsund króna launahækkun fyrir utan vaktaálag og annað slíkt. Við erum með dæmi um 60 til 70 þúsund króna hækkun. Það sem ég sagði þegar ég var að skrifa undir samninginn: ég hef aldrei áður séð slíkar hækkanir,“ segir Vilhjálmur og bætir við að niðurstaða atkvæðagreiðslu sýni svo ekki verði um villst að mikil ánægja er með samninginn.