Íþróttaárið 2022 í gegnum linsu ljósmyndara Vísis Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2022 10:00 Hafdís Renötudóttir og Emma Olsson hoppa hæð sína í loft upp eftir að Fram tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna með sigri á Val á Hlíðarenda. vísir/hulda margrét Íþróttaárið 2022 á innlendum vettvangi var viðburðarríkt og þar skiptust á skin og skúrir.
Ljósmyndarar Vísis voru mikið út á örkinni og fönguðu stærstu íþróttaugnablik ársins, gleðina og sorgina, hæðirnar og lægðirnar. Hér fyrir neðan má sjá valdar myndir af innlendum íþróttavettvangi frá ljósmyndurum Vísis, auk nokkurra frá vinum okkar á Getty. Origo-höllin var troðfull þegar Valur og Tindastóll luku mögnuðu úrslitaeinvígi með oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Valsmenn unnu leikinn og urðu þar með Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í 39 ár.vísir/bára Breiðablik vann Bestu deild karla með miklum yfirburðum. Herra hnetusmjör tróð upp þegar Blikar tóku á móti Íslandsmeistaraskildinum og Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari þeirra, lifði sig inn í tónlistina.vísir/hulda margrét Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 33 stig þegar íslenska kvennalandsliðið í körfubolta sigraði það rúmenska í undankeppni EM. Enginn leikmaður íslensks A-landsliðs hefur skorað fleiri stig í einum leik í Laugardalshöllinni en hún.vísir/hulda margrét Íslenska karlalandsliðið tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu 2023 með öruggum sigri á Austurríki. Bjarki Már Elísson sést hér með dóttur sinni eftir leikinn á Ásvöllum.vísir/hulda margrét Valskonur urðu Íslandsmeistarar annað árið í röð í fótbolta kvenna. Þeir gerðu gott betur og urðu einnig bikarmeistarar. Hér sést Mist Edvardsdóttir lyfta nýja Íslandsmeistaraskildinum.vísir/diego Nökkvi Þeyr Þórisson átti stórkostlegt tímabil með KA sem varð í 2. sæti Bestu deildar karla og náði þar með sínum næstbesta árangri frá upphafi. Dalvíkingurinn varð markakóngur deildarinnar með sautján mörk og var svo valinn besti leikmaður hennar. Skömmu áður en tímabilinu lauk gekk Nökkvi í raðir Beerschot í Belgíu þar sem hann hefur leikið vel.vísir/hulda margrét Valur varð bikarmeistari í handbolta, bæði í karla- og kvennaflokki. Hér sést handboltaparið Þorgils Jón Svölu Baldursson og Lovísa Thompson eftir úrslitahelgina á Ásvöllum.vísir/hulda margrét Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fagnar af innlifun eftir að hafa komið Íslandi yfir gegn Ítalíu á EM á Englandi. Því miður dugði markið ekki til sigurs en leikar fóru 1-1.vísir/vilhelm Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir smellir kossi á kærustu sína, Erin McLeod, eftir lokaleik Íslands á EM, 1-1 jafntefli við Frakklandi. Íslendingar komust ekki áfram þrátt fyrir að tapa ekki leik á EM.vísir/vilhelm Draumur íslenska kvennalandsliðsins að komast á HM í fyrsta sinn varð að engu eftir 4-1 tap fyrir Portúgal í umspili. Sveindís Jane Jónsdóttir var með böggum hildar eftir leikinn.vísir/vilhelm Í nóvember tryggði Guðmundur Ágúst Kristjánsson sér sæti á Evrópumótaröðinni í golfi, annar íslenskra karlkylfinga. Hinn er Birgir Leifur Hafþórsson.getty/Angel Martinez Ísland vann stórkostlegan sigur á Frakklandi í milliriðli á EM í janúar, þrátt fyrir að vera án fjölmargra lykilmanna. Hér fagnar Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson sigrinum frækna.getty/Sanjin Strukic Skagamaðurinn ungi, Hákon Arnar Haraldsson, átti eftirminnilegt ár. Hann varð danskur meistari með FC Kaupmannahöfn, lék sína fyrstu A-landsleiki og varð svo fjórði Íslendingurinn til að skora í Meistaradeild Evrópu er hann gerði mark FCK í 1-1 jafntefli við Borussia Dortmund á Parken.vísir/hulda margrét Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru í lykilhlutverki hjá Magdeburg sem varð þýskur meistari í fyrsta sinn síðan 2001. Magdeburg varð einnig heimsmeistari félagsliða eftir sigur á Barcelona þar sem Íslendingarnir fóru á kostum. Árið var sérstaklega gjöfult fyrir Ómar sem var valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar, var næstmarkahæsti leikmaður hennar og markakóngur EM.getty/Martin Rose Tryggvi Snær Hlinason sýndi mátt sinn og megin þegar Ísland vann glæsilegan sigur á Ítalíu í undankeppni HM. Hann skoraði 34 stig, tók 21 frákast og varði fimm skot.vísir/bára Hilmar Örn Jónsson varð í ágúst fyrsti Íslendingurinn til að komast í úrslit í sleggjukasti á Evrópumóti. Hann endaði í 12. sæti.getty/Maja Hitij Valur fékk þátttökurétt í Evrópudeildinni og byrjaði hana af krafti. Í fyrsta leik sínum í B-riðli sigraði Valur Ferencváros frá Ungverjalandi í miklum markaleik, 43-39. Valur fylgdi því svo eftir með því að vinna Benidorm í öðrum leik sínum og er með fimm stig eftir sex leiki í riðlinum.vísir/hulda margrét Nýliðar Njarðvíkur gerðu sér lítið fyrir og urðu Íslandsmeistarar í körfubolta kvenna. Hér sjást leikmenn Njarðvíkur umkringja hér Aliyah Collier sem var valin besti leikmaður úrslitaeinvígisins.vísir/bára FH-ingar fengu góða gjöf þegar landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson skrifaði undir samning við félagið skömmu fyrir jól.vísir/hulda margrét
Fréttir ársins 2022 Ljósmyndun Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Fleiri fréttir Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Svona var fundur Íslands fyrir leikinn við heimsmeistarana Kaldur sviti er Eriksen féll til jarðar Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Dagbjartur og Gunnlaugur spila um sæti á risamóti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Löggan þorði ekki að þiggja miða Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Sigraði sitt fjórða PGA-mót þrátt fyrir óveður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Dagskráin í dag: Síðasti leikur Frakka fyrir HM Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Ótrúlegur lokasprettur og Aron vann þriðja mótið í röð „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Valskonur styrkja sig Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Sjá meira