Markmiðið að til verði einn héraðsdómstóll í stað átta sjálfstæðra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. desember 2022 16:14 Færð eru rök fyrir því að með sameiningu verði stjórnsýsla á fyrsta dómstigi einfaldari og öflugri. Vísir/Vilhelm Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur hafið undirbúning að sameiningu átta héraðsdómstóla í einn héraðsdómstól. Forsenda sameiningarinnar að mati ráðherra er sú að héraðsdómstóllinn hafi áfram starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem núverandi dómstólar eru staðsettir. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að efla þurfi og styrkja starfstöðvarnar með nýjum verkefnum. Með einum héraðsdómstól megi ná fram einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu og bættu eftirliti. Fjárframlög og mannauður dómstólanna muni nýtast betur og aukið hagræði nást við meðferð dómsmála borgurunum til hagsbóta. Dómsmálaráðherra skipaði starfshóp um sameiningu héraðsdómstólanna í mars 2022 sem hefur nú skilað ráðherra skýrslu. „Megintillögur hópsins eru þær að héraðsdómstólarnir verði sameinaðir í einn Héraðsdóm með yfirstjórn í Reykjavík og átta starfsstöðvar á þeim stöðum sem héraðsdómstólarnir eru nú starfræktir. Störfum verði fjölgað á starfsstöðvum á landsbyggðinni og munu að lágmarki þrír starfa á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdómarar eða einn héraðsdómari og einn dómarafulltrúi,“ segir Lagt er til að dómstjóri og varadómstjóri Héraðsdóms verði skipaðir til fimm ára úr hópi héraðsdómara af stjórn dómstólasýslunnar. Það verði gert að undangengnu hæfnismati í stað kosningar á meðal dómara. Starfshópurinn setur meðal annars fram þessar röksemdir fyrir breytingunum Stjórnsýsla á fyrsta dómstigi verður einfaldari og öflugri. Með heimildum til að flytja dómsmál á milli starfsstöðva verði tryggð næg verkefni fyrir alla starfsmenn og góð nýting mannauðs. Tryggt verður að þjónusta héraðsdómstólanna utan höfuðborgarsvæðisins skerðist ekki. Með útfærslunni er búið í haginn fyrir stafræna umbreytingu í dómskerfinu þar sem tekið er við öllum dómsmálum í einni sameiginlegri gátt. Starfshópurinn telur að þegar ráðist er í jafn miklar breytingar á uppbyggingu stofnana réttarkerfisins og hér er lagt til sé mikilvægt að gefinn verði rúmur aðlögunartími frá lögfestingu til gildistöku laganna eða allt að tvö ár. Er því lagt til að sameining héraðsdómstólanna taki gildi 1. ágúst 2024 en dómstjóri verði skipaður frá 1. mars 2024 til þess meðal annars að undirbúa sameininguna og starfsemi Héraðsdóms. Skýrsla hópsins hefur verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda og gefst þar kostur á að kynna sér efni hennar og koma á framfæri athugasemdum eða ábendingum. Hana má lesa hér að neðan. Í núverandi fyrirkomulagi er einn dómstjóri hjá hverjum dómstól. Þeir hafa ólíka sýn á hvernig dómstólarnir eigi að starfa og raunar einstaka dómarar innan hvers dómstóls. Sú ólíka sýn birtist meðal annars í því hvort þeir birti dagskrá dómstólsins á vefnum, hvort þeir birti dóma, hvort rukkað sé fyrir gögn hjá dómstólunum og fleira í þeim dúrnum. Dómstjóri hjá Héraðsdómi Norðurlands vestra sagði um árið, aðspurður af hverju hann birti svo fáa dóma, að leitarvélin Google gleymi engu. Tengd skjöl Sameining_héraðsdómstóla_-_skýrsla_starfshópsPDF6.3MBSækja skjal
Dómstólar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira