Íslensku tröllin í aðalhlutverki í nýrri ævintýramynd Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. desember 2022 13:15 Stilla úr kvikmyndinni Jólamóðir. Í nýrri stiklu fyrir fjölskyldu- og ævintýramyndina Jólamóðir eru kynntir til leiks landsþekkir karakterar og þjóðargersemi, íslensku tröllin. Um leikstjórn sá hinn 27 ára gamli Jakobs Hákonarsonar, sem spreytir sig á stóra tjaldinu í fyrsta skiptið.
Í myndinni fá áhorfendur að fylgja eftir íbúum Grýluhellis, einna helst tröllaskystkinunum Hurðaskelli og Skjóðu og mömmu þeirra Grýlu. Í gegnum myndina bregður fyrir hátt í 70 tröllum sem búa í hellinum fræga að sögn Jakobs. „Myndin gerist fyrir langa löngu, hversu löngu er ekki vitað, á stórum tímamótum í lífi tröllanna, stuttu eftir að þau breyttust í þá jólasveina sem við þekkjum í dag. Það hefur gert það að verkum að það eru fleiri spurningar en svör innan fjölskyldunnar og tröllin reyna að læra á sýnar nýju skyldur.“ Sýnishorn úr myndinni má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Jólamóðir - Sýnishorn Myndin var framleidd af Jakobi ásamt Önnu Bergljótu Thorarensen, Andreu Ösp Karlsdóttur og Sigsteini Sigurbergssyni fyrir framleiðslufyrirtækið A Whole Lotta Love.. Óttar Ingi Þorbergsson sá um kvikmyndatöku. Um tónlist sáu Þórður Gunnar Þorvaldsson og Helgi Reynir Jónsson en á meðal leikara eru Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Gríma Kristjánsdóttir, Huld Óskarsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson. „Eftir að hafa verið skilin eftir alein heima í Grýluhelli, í fyrsta skipti í sögu hellisins, þurfa tröllasystkinin Hurðaskellir og Skjóða að vinna sig í gegnum stirt samband sitt til þess að komast að því hvert allir hinir 98 íbúar hellisins hafa farið. Á ferðalaginu sem tekur við læra systkinin nýja hluti um mömmu sína Grýlu, hvernig það kom til að þau urðu þessi jólafjölskylda og hvað fylgir töfrum jólanna. Grýla er einnig að glíma við sömu spurningar á meðan skyldur hennar sem Jólamóður, verndara töfra jólanna, stangast á við þá grimmu tröllskessu sem hún áður var.“ Pósterinn hannaði Sigríður Ásta Júlíusdóttir.
Bíó og sjónvarp Jól Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Aðventan með Lindu Ben: Pakkaskraut sem þú borðar Jól Aðventan með Lindu Ben: Sörur og gjafaöskjur Jól Heitustu jólagjafirnar fyrir hana Jól Dóra Júlía kemur fólki í jólaskap og gerir upp árið á FM957 Jól Bítið á Bylgjunni frumflytur lagið Sóttvarnajól Jól Jólalag dagsins: Auddi og Sveppi fengu einvalalið til að syngja Svona eru Jólin Jól Sykurlausar sörur hinna lötu Jól Jólatrén fimm þegar mest var Jól Marengshringur og jólakonfekt Evu Laufeyjar úr Ísland í dag Jól Jóladagatal Vísis: Skólarappið sem verður aldrei þreytt Jól