Viktor Gísli hafði betur gegn Aroni og Arnóri Smári Jökull Jónsson skrifar 1. desember 2022 21:33 Viktor Gísli Vísir/EPA Viktor Gísli Hallgrímsson átti fínan leik í marki Nantes þegar liðið lagði Álaborg í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru markahæstir hjá Magdeburg sem gerði jafntefli gegn Porto.
Viktor Gísli og félagar í Nantes tóku á móti Álaborg á heimavelli sínum í Frakklandi en Aron Pálmarsson leikur með danska liðinu auk þess sem Arnór Atlason er þjálfari liðisins. Nantes tók frumkvæðið strax í byrjun og komst í 12-4 í fyrri hálfleiknum. Franska liðið leiddi 18-12 og lét forystuna aldrei af hendi í síðari hálfleiknum. Álaborg minnkaði muninn í tvö mörk þegar skammt var eftir í stöðunni 30-28 en Nantes skoraði síðustu fimm mörk leiksins og vann að lokum sjö marka sigur, lokatölur 35-27. Viktor Gísli varði 14 skot í marki Nantes eða 33% af þeim skotum sem hann fékk á sig. Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir Álaborg. Ómar Ingi Magnússon átti enn og aftur góðan leik fyrir Magdeburg.Vísir/Getty Í Portúgal tók Porto á móti þýska stórliðinu Magdeburg. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru oftar sem áður í aðalhlutverki hjá Magdeburg í jöfnum leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en undir lokin. Magdeburg leiddi í hálfleik 16-12 en í síðari hálfleiknum kom Porto til baka og voru komnir í 20-17 eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik. Porto var með frumkvæðið lengst af eftir það en þegar fjórar mínútur voru eftir náði Magdeburg forystunni á ný og komust í 31-29. Porto skoraði hins vegar tvö síðustu mörk leiksins, lokatölur 31-31. Ómar Ingi var markahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk og Gísli Þorgeir kom næstur með sex.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið HM-leikmaður í glannakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira