Öruggur sigur Argentínu en bras á Þjóðverjum gegn Óman Smári Jökull Jónsson skrifar 16. nóvember 2022 19:35 Lionel Messi og félagar hans í Argentínu mæta fullir sjálfstraust á HM. Vísir/Getty Argentína vann 5-0 stórsigur á Sameinuðu arabísku furstadæmunum í vináttulandsleik í kvöld. Þjóðverjar lentu hins vegar í óvæntu basli með Óman.
Fjölmargir vinuáttulandsleikir í knattspyrnu fóru fram í kvöld enda stutt í HM og margar þjóðir á fullu í sínum lokaundirbúningi fyrir mótið sem hefst á sunnudag í Katar. Argentína er eitt þessara liða en þeir mættu Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Abu Dhabi í kvöld. Óhætt er að segja að Argentínumenn hafi sýnt mátt sinn og megin því þeir gengu frá leiknum í fyrri hálfleik. Julian Alvarez skoraði fyrsta markið á 17.mínútu og Angel Di María bætti við tveimur mörkum áður en Lionel Messi skoraði rétt áður en flautað var til hálfleiks. Joaquin Correa skoraði fimmta markið í síðari hálfleik eftir að hafa komið inn sem varamaður í leikhléi. Lokatölur 5-0 og ljóst að Argentína mætir vel undirbúið til leiks í Katar en margir hafa spáð þeim heimsmeistaratitlinum sem Lionel Messi þráir svo heitt. Niclas Fullkrug sést hér skora sigurmark Þjóðverja í kvöld.Vísir/Getty Þjóðverjar léku einnig í kvöld en þeir mættu Óman á heimavelli þeirra síðarnefndu í Muscat í kvöld. Þjóðverjar stilltu ekki upp sínu sterkasta liði en engu að síður var búist við öruggum sigri þeirra í kvöld enda þeir þýsku í 11.sæti á styrkleikalista FIFA en Óman í 75.sæti. Sú varð þó ekki raunin. Staðan í hálfleik var markalaus og það var ekki fyrr en á 80.mínútu sem Niclas Fullkrug, leikmaður Werder Bremen, skoraði eina mark leiksins. Þá unnu Pólverjar 1-0 sigur á Chile í leik sem fram fór í Póllandi. Krzysztof Piatek skoraði eina mark leiksins á 85.mínútu í leik þar sem Chile var sterkari aðilinn og Robert Lewandowski kom ekkert við sögu hjá Pólverjum.
HM 2022 í Katar Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Allegri ráðinn þjálfari Napoli Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Sjá meira