Bað kærustunnar eftir að hann var valinn í HM-hópinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2022 09:00 Pedro Guilherme fór á skeljarnar eftir að í ljós kom að hann væri á leið á HM í Katar. Mánudagurinn 7. nóvember 2022 var sannkallaður draumadagur í lífi brasilíska fótboltamannsins Pedros Guilherme.
Eftir að hafa fengið að vita að hann væri í 26 manna hópi Brasilíu sem fer á HM í Katar síðar í mánuðinum fór Pedro á skeljarnar og bað kærustu sinnar. Og til að toppa daginn sagði hún já. Hinn 25 ára Pedro horfði á beina útsendingu frá valinu á HM-hópnum ásamt fjölskyldu sinni. Eftir að í ljós kom að hann væri á leið til Katar kraup hann fyrir framan kærustu sína og góður dagur varð enn betri. CONVOCADO E AGORA NOIVO! @Pedro9oficial pediu sua namorada Fernanda Nogueira em casamento logo após a convocação! LINDOS! #CRF pic.twitter.com/atHwqKKi0j— Flamengo (@Flamengo) November 7, 2022 Eftir erfiða tíma hjá Fiorentina hefur Pedro spilað stórvel og raðað inn mörkum síðan hann gekk í raðir Flamengo í heimalandinu. Á þessu ári hefur hann samtals skorað 29 mörk fyrir Flamengo og átti stóran þátt í að liðið vann Copa Libertadores, Meistaradeild Suður-Ameríku. Pedro hefur leikið tvo landsleiki fyrir Brasilíu og skorað eitt mark, í vináttulandsleik gegn Túnis í lok september. Brasilía hefur leik á HM gegn Serbíu 24. nóvember. Fjórum dögum síðar mæta Brassar Svisslendingum og þeir ljúka svo riðlakeppninni gegn Kamerúnum 2. desember.
Fótbolti HM 2022 í Katar Ástin og lífið Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira