Ókeypis á leikina við Ísrael um helgina Sindri Sverrisson skrifar 2. nóvember 2022 16:31 Rut Jónsdóttir er í íslenska landsliðshópnum sem ætlar sér sigur gegn Ísrael í leikjunum tveimur um helgina. Liðið vonast eftir góðum stuðningi. vísir/Jónína Íslenska kvennalandsliðið í handbolta leikur afar mikilvæga leiki við Ísrael um helgina á Ásvöllum í Hafnarfirði. Stefnt er á að fylla höllina og er aðgangur ókeypis í boði Arion banka.
Leikirnir við Ísrael eru á laugardag og sunnudag og hefjast báðir klukkan 15. Í stað þess að leikið sé á Íslandi og í Ísrael sömdu handknattleikssambönd þjóðanna um að báðir leikirnir færu fram hér á landi. Um er að ræða tveggja leikja einvígi um að komast í umspil um laust sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer eftir rúmt ár, en það verður haldið í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Íslensku stelpurnar unnu tvo sigra gegn Færeyjum ytra í vináttulandsleikjum um síðustu helgi. Vonir standa til þess að Hildigunnur Einarsdóttir komi inn í hópinn fyrir leikina við Ísrael eftir að hafa ekki farið með til Færeyja. Í íslenska landsliðshópnum eru ungir nýliðar. Markvörðurinn Ethel Gyða Bjarnasen og leikstjórnandinn Elín Klara Þorkelsdóttir, sem voru í lykilhlutverki hjá U18-landsliðinu sem varð í 8. sæti á HM í sumar, voru báðar valdar í upphaflega hópinn um miðjan október. Þriðji nýliðinn, Lilja Ágústsdóttir, sem einnig var í lykilhlutverki í U18-liðinu, var svo einnig kölluð inn í hópinn vegna meiðsla Unnar Ómarsdóttur. Áður hafði Katrín Tinna Jensdóttir, leikmaður Volda í Noregi, verið kölluð inn eftir að Lovísa Thompson og Berglind Þorsteinsdóttir drógu sig út úr hópnum.
Handbolti HM 2023 í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira