
Vladimir Putin Rússlandsforseti er sjötugur í dag en hefur ekki miklu að fagna, alla vega hvað varðar framgang ólöglegrar innrásar hans í Úkraínu og sýndarinnlimun á fjórum héruðum í Rússland. Leiðtogar fjörutíu og fjögurra Evrópuríkja komu saman í Prag í Tékklandi í gær til að stilla saman strengi sína. Í dag hófst síðan leiðtogafundur tuttugu og sjö aðildarríkja Evrópusambandsins á sama stað.
Stærsta verkefni fundarins er að ná samkomulagi um aðgerðir vegna mikillar hækkunar á verði jarðgass til heimila og fyrirtækja. Fimmtán aðildarríki sambandsins hvetja til þess að hámarksverð verði sett á gas en ekki er eining um þá tillögu, að sögn aðallega vegna andstöðu Þjóðverja.

Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sagði í morgun að Evrópuríkjum hefði tekist að bregðast við kúgun Putins sem meira og minna hefur skrúfað fyrir gasflutninga til Evrópu. Birgðarstöðvar væru 90 prósent fullar og tekist hefði að koma á öruggum gasviðskiptum við Norðmenn og Bandaríkjamenn.
„Nú erum við undirbúin. Við höfum komið upp fyrstu varnarlínunni fyrir markaði okkar. Nú er kominn tími til að ræða hvernig við getum dregið úr verðhækkunum á orkunni og áhrifum Putins á orkumarkaðinn. Umræða dagsins verður um þak á orkuverð,“ sagði von der Leyen fyrir fundinn í morgun.

Evrópusambandið vinnur einnig að mótun á áttunda refsiaðgerðarpakka sínum gegn Rússlandi. Frá því Putin fyrirskipaði innrásina í Úkraínu í febrúar undir formerkjum afnasistavæðingar og vernd fyrir rússneskumælandi íbúa Úkraínu gegn ofsóknum, hefur hann breytt málflutningi sínum. Nú talar hann um nánast heilagt stríð gegn Bandaríkjunum og NATO sem vilji sundra rússneska sambandsríkinu.

Putin hefur endurtekið hótanir um notkun kjarnorkuvopna enda kominn út í horn vegna gagnsóknar Úkraínumanna sem náð hafa þúsundum ferkílómetrum lands af Rússum. Volodymyr Zelenskyy forseti segir mikinn árangur hafa náðst í austurhéruðunum og Kherson í suðri.
„Og sá dagur kemur þegar við greinum einnig frá árangri í frelsun Zaporizhzhia, þeim hluta sem enn er á valdi innrásarliðsins. Sá dagur mun einnig renna upp þegar við tölum um frelsun Krímskaga," sagði Volodymir Zelenskyy. En stríðið í Úkraínu hófst í reynd þegar Putin réðst inn á Krímskaga árið 2014 og innlimaði skaga skömmu síðar eftir sýndarkosningar íbúanna.