Eva Margrét kjörin formaður Rafíþróttasamtaka Íslands Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2022 13:45 Eva Margrét Guðnadóttir. Aðsend Eva Margrét Guðnadóttir var kjörin formaður Rafíþróttasambands Íslands á aðalfundi sambandsins á föstudaginn.
Í tilkynningu segir að Eva Margrét sé 27 ára og hafi starfað hjá RÍSÍ frá því snemma á þessu ári við framleiðslu á íslensku afþreyingarefni og tekið ófá viðtöl við íslenskt rafíþróttafólk. „Þetta er í fyrsta skipti sem það verða formannsskipti frá stofnun sambandsins en tekur hún við af Ólafi Hrafni Steinarssyni. Hún hefur einnig verið á skjám landsmanna í Framhaldsskólaleikunum og með streymishópnum Babe Patrol, ásamt því að standa fyrir sérstöku kvöldi fyrir stelpur í tölvuleikjum í Arena Gaming. Samhliða því er Eva Margrét meistarnemi í Mannauðsstjórnun og vinnusálfræði,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Evu Margréti að það sé mikill heiður að taka við stöðunni og fá að leiða starfið næstu tvö árin. „Samtökin hafa verið að eflast mikið með hverju árinu og sérstaklega hefur verið ánægjulegt að sjá aukna þátttöku alls fólks í rafíþróttum en mínar áherslur sem formaður verða meðal annars að auka hlut kvenna og jaðarhópa í rafíþróttum ásamt því að tryggja gæði á skipulögðu starfi ungmenna í rafíþróttum en nú þegar eru aðstæður til iðkenda víða um land og mikilvægt fyrir sambandið að veita öllum aðildarfélögum góðan stuðning. Margar íþróttarhreyfingar hafa þurft að bíða í fleiri áratugi eftir því að konu verði treyst til að leiða starfið, kjör mitt segir margt um hversu framalega við stöndum en aðeins eru fjögur ár síðan sambandið var stofnað,“ segir Eva Margrét. Einnig voru kjörin í stjórn: Þengill Björnsson Kári Björnsson Benjamín Björn Hinriksson Ásdís Erla Jóhanssdóttir Davíð Jóhannson Þórir Viðarson Varamenn eru: Bjarni Sigurðsson Axel Gíslason Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) eru samtök stofnuð til þess að vekja athygli á og styðja þróun rafíþrótta (e. esports) á Íslandi. Markmið samtakanna er að kynna rafíþróttir sem gilt áhugamál sem elur með sér jákvæða ávinninga fyrir iðkendur svo sem samvinnu, samskiptahæfni, viðbragðsflýti, vandamálalausn og hvers konar líkamlega þjálfun er stefnir að því að auka líkamlegt og andlegt atgervi, heilbrigði og hreysti ásamt fleiri ávinningum þegar þær eru stundaðar markvisst.
Vistaskipti Rafíþróttir Leikjavísir Mest lesið Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn Barcelona Spánarmeistari Fótbolti „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Handbolti Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn „Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik“ Sport Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Handbolti Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið Handbolti Bikarævintýri Fram heldur áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn