„Þetta land er Úkraína,“ sagði Stoltenberg.
Þessu lýsti Stoltenberg yfir á Twitter í dag og sagðist hann einnig hafa komið þessu á framfæri við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.
Selenskí sagðist hafa þakkað Stoltenberg fyrir yfirlýsingar hans um ólögmæti aðgerða Rússa í Úkraínu.
Just spoke with President @ZelenskyyUa & made clear that #NATO Allies are unwavering in our support for #Ukraine s sovereignty & right to self-defence. The sham referenda held by #Russia have no legitimacy & are a blatant violation of international law. These lands are Ukraine.
— Jens Stoltenberg (@jensstoltenberg) September 27, 2022
Undanfarna daga hefur farið fram atkvæðagreiðsla á yfirráðasvæðum Rússa í Úkraínu og lauk henni í dag. Samkvæmt útgönguspám kaus yfirgnæfandi meirihluti fólks sem á að hafa tekið þátt í atkvæðagreiðslunni með því að ganga í rússneska sambandsríkið, eða rúm 96 prósent íbúa.
Vert er að benda á að framkvæmd atkvæðagreiðslunnar var langt frá því að vera eðlileg og að niðurstaðan hefur verið ljós frá því lýst var yfir að hún yrði haldin. Það mátti meðal annars glögglega sjá á ummælum rússneskra ráðamanna.
Pútín mun ávarpa rússneska þingið á föstudaginn og er gert ráð fyrir því að hann muni þá tilkynna innlimun héraðanna, sem saman mynda um fimmtán prósent Úkraínu.
Sjá einnig: Boða innlimun, heita syndaaflausn og hóta kjarnorkustríði
Landvinningar Rússa í Úkraínu eru ekki öruggir og eru rússneskar hersveitir víða á hælunum. Úkraínumenn eru sagðir hafa náð góðum árangri í norðanverðu Donetsk-héraði á undanförnum dögum, í kjölfar gífurlega vel heppnaðar gagnárásar gegn Rússum fyrir tveimur vikum. Sú árás leiddi til þess að Rússar hörfuðu frá öllu héraðinu og hafa Úkraínumenn haldið þeirri sókn áfram.
Nú virðist sem Úkraínumenn vinni að því að umkringja hersveitir Rússa í borginni Lyman í Donetsk-héraði.
Úkraínskir hermenn hafa þegar myndað stórt gat í víglínum Rússa norður af Lyman og hafa fregnir borist af því að þeir hafi náð þó nokkrum bæjum og þorpum á svæðinu á sitt vald á undanförnum dögum. Úkraínumenn eru einnig sagðir hafa sótt fram austur af borginni í dag, þær fregnir hafa þó ekki verið staðfestar þegar þetta er skrifað.
Í frétt Wall Street Journal (áskriftarvefur) segir að sókn Úkraínumanna ógni yfirráðum Rússa í Donetsk og Luhansk, sem saman mynda Donbas-svæðið svokallaða. Úkraínumenn séu að frelsa bæi og þorp sem Rússar hafi náð tökum á í apríl.
Blaðmaður og ljósmyndari miðilsins eru í fylgd með úkraínskum hermönnum við Lyman og segir hann baráttuanda rússneskra hermanna vera lítinn eftir undanhaldið frá Kharkív. Þá segir hann frá því að rússneskir hermenn hafi verið handsamaðir í nærliggjandi þorpi á sunnudaginn og þeir hafi margir hverjir verið ölvaðir.
„Þeir sem voru allsgáðir flúðu og þeir sem voru ölvaðir áttuðu sig ekki á því að það væri verið að ráðast á þorpið og voru handsamaðir,“ sagði einn hermaður við ljósmyndarann.
Russian soldiers are still hiding in the woods, some with weapons, some without weapons. Sometimes they come out to the road to surrender because they have no food, no water, no nothing. My report from northern Donetsk, where Ukraine s offensive goes on. https://t.co/kFNHl1cMVP
— Yaroslav Trofimov (@yarotrof) September 27, 2022