Ingimar ræddi verkefnið við Danna á X977. Hawkins var trommuleikarinn í Foo Fighters en hann lést í mars síðastliðinn. Foo Fighters héldu aðra slíka minningartónleika á Wembley í byrjun mánaðarins en í kvöld troða þeir upp í Los Angeles.
„Þetta er náttúrulega heimavöllur fyrir þá, Dave Grohl býr hérna og Taylor bjó hérna í Kaliforníu.“
Ingimar flutti erlendis eftir að sjónvarpsstöðin Bravó sem hann starfaði fyrir hætti starfsemi.
„Þá fæ ég ógeð af þessum íslenska fjölmiðlabransa, ég var búinn að vinna í sjónvarpi og fjölmiðlum á Íslandi í mörg ár.“
Segist hann hafa verið orðinn þreyttur á fjöldauppsögnum í bransanum hér þá flutti hann út í nám í framleiðslu og útsendingastjórn sjónvarpsskemmtiefnis.
„Ég fékk atvinnutilboð upp úr því og hef eiginlega verið erlendis síðan.“

Má ekki taka myndir
Hann byrjaði í London vann hjá BBC en síðustu fjögur ár hefur hann verið í Los Angeles þar sem hann kemur að allskonar tónleikum og verðlaunaafhendingum, til dæmis þar sem Lady Gaga hefur komið fram.
„Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég er svolítið starstruck í vinnunni,“ segir Ingimar um Foo Fighters verkefnið.
Hann má þó ekki taka myndir eða tjá sig mikið um lífið bakvsiðs, stundum þarf hann að skrifa undir trúnaðarsamninga.
„Maður má ekki tjá sig, en ég treysti því að það sé enginn í fjölmiðlateymi Foo Fighters að hlusta á X-ið.“
Ingimar segir að hann byrji aldrei vinna eins seint á daginn og þegar það eru rokktónleikar, en svo virðist sem rokkararnir vilji sofa út.
„Við erum ekki að byrja fyrr en um hádegi og erum að vinna til miðnættis.“

Ingimar segist geta notið tónleikana þrátt fyrir að vera í vinnunni, og það ætlar hann sér að gera á tónleikunum í kvöld.
Til að nefna nokkra, þá spiluðu Paul McCartney, Van Halen, Nile Rodgers og Oasis á tónleikunum á Wembley, en búist er við Alanis Morissette, Miley Cyrus, Lars Ulrich (Metallica), Sebastian Bach (Skid Row), Geezer Butler (Black Sabbath) og mörgum fleirum á Los Angeles tónleikunum.
Viðtalið við Ingimar má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.